Hönnun

Bylting í hönnun.

Fáguð og framsækin hönnun nýs TUCSON er byltingarkennd. Hér ræður nútímaleg fegurð ferðinni með einstökum meitluðum flötum og rennilegum línum.

Hönnun ytra byrðis

Sportleg fágun í fyrirrúmi.

Yfirbyggingin er stærri og breiðari. Nýr Tucson er sá fyrsti úr SUV-línu Hyundai sem er hannaður eftir nýju hönnunarstefnunni þar sem sportleg fágun er í fyrirrúmi. Kröftug staðan sameinar skörp horn og rennileg hlutföll með áberandi flötum. Niðurstaðan er framsækið útlit sem kemur kraftalegri arfleifð Tucson fullkomlega til skila.

your 360 images

Fyrstu innfelldu duldu ljós sinnar tegundar.

Dökkkrómað grillið lýsist upp þegar ekið er af stað. Með fyrsta flokks hálfspeglaðri lýsingartækni eru innfelldu duldu ljósin falin þegar slökkt er á þeim en þegar kveikt er á þeim lyftast ytri hlutar grillsins upp eins og vængir og skapa einkennandi lýsingu með hátæknilegu yfirbragði. Þegar bíllinn er stöðvaður eru ljósin aftur dulin innan grillsins.

Z-laga útlínur á hliðum.

Djörf hönnun, á borð við Z-laga útlínur á hliðunum, skapa sportlegt og kraftmikið útlit.

Krómaður áherslulisti.

Sportlegt yfirbragð nýs TUCSON er undirstrikað með krómuðum áherslulista með skarpri fleygbogalögun sem nær frá hliðarspeglum aftur að afturljósunum.

LED-afturljósasamstæða.

Breið LED-afturljósin eru með sömu lögun og innfelldu duldu ljósin til að skapa samfellt útlit.

Lagaðu nýjan TUCSON að þínum stíl.

Nú eru þrír nýir og glæsilegir litir í boði: Sindrandi silfurlitaður, Amazon-grár og blágrænn sem þýðir að nú er hægt að velja úr níu litum á ytra byrði. Þar að auki er hægt að velja tvítóna þak, annað hvort svart eða dökkgrátt. Þannig geturðu sérsniðið nýjan Tucson enn frekar að þínum stíl.

Previous slide
Next slide

Hönnun innanrýmis

Fegurðin í innra rýminu.

Innanrými nýs Tucson er fágað og rúmgott. Um leið og þú sest inn finnurðu hversu opið rýmið er. Hér sameinast rými, tækni og upplýsingar í fullkomnum samhljómi. Ávöl form og mjúk gæðaefni innanrýmisins gefa því einstakt útlit og yfirbragð.

Þakgluggi.

Ylurinn frá sólinni og ferskur vindur leika um þig þegar þú opnar þakgluggann á Tucson sem er aukabúnaður.

Litasamsetningar í innanrými

Veldu úr þremur innréttingum: obsidian-svörtum, mosagráum eða blágrænum. Tveir silfraðir skrautlistar liggja frá miðju mælaborðinu að afturhurðunum, óháð þeim lit sem er valinn, og tóna fullkomlega við snyrtilega hannaða yfirborðsfletina sem eru í hlutlausum litum.

Obsidian-svartur.

Sígildur svartur og hægt er að velja á milli sæta með ofnu áklæði og með leðursæta.

Mosagrár.

Með mosagráa litnum er einnig hægt að velja á milli sæta með ofnu áklæði og leðursæta.

Blágrænn.

Veldu svört sæti með annað hvort ofnu áklæði eða leðri með blágrænum saumum á sætum, armpúðum og gírstöng. Blágrænar efnisinnfellingar eru einnig á árekstrarpúðanum og hurðarklæðningunni.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.