KONA Hybrid

Hybrid á nýju stigi.

Nýr Kona hefur verið endurnýjaður og endurskilgreindur. Verðlaunuð hönnun forverans hefur verið uppfærð með nýjum hönnunaráherslum, framúrskarandi tengimöguleikum og öryggisbúnaði.

Play Video

Helstu atriði.

Nýr Kona Hybrid sameinar fallegt útlit og stórkostlega sparneytni sem þakka má hugvitsamlegri Hybrid-aflrásinni. Þessi fjölhæfi fólksbíll hefur verið uppfærður með nýjum og rennilegum hönnunaráherslum sem og nýjustu snjalltækni á borð við framúrskarandi akstursaðstoðarkerfi og tengibúnað. Hann kemur þér lengra og á minna eldsneyti.

Djörf og framúrstefnuleg uppfærsla á hönnun bílsins ljáir Kona Hybrid straumlínulegra og sportlegra útlit án þess að fórna kraftmiklum einkennum og einstökum stíl.

Hver sagði að það þyrfti að vera leiðinlegt að minnka útblástur. Framsækna hybrid-aflrásin býður upp á einstaka sparneytni og mögnuð afköst.

Nýr Kona Hybrid gefur ekkert eftir þegar kemur að rými. Það er nóg pláss fyrir bæði farþega og farangur og svo er farangursgeymslan með enn meira pláss en forverinn.

Previous slide
Next slide

Hvað er hybrid?

Nýr Kona Hybrid er bæði með bensínvél og rafmótor. Þau vinna saman með fulltingi öflugrar rafhlöðu við að tryggja sparneytni og draga úr útblæstri. Hnökralaust er að skipta á milli vélarinnar og rafmótorsins og stundum eru bæði notuð í einu. Endurheimtarkerfi hemlaorku hjálpar svo til við að hægja á bílnum og hleður rafhlöðuna um leið.

Aukið öryggi.

Nú með úrvali háþróaðra akstursaðstoðarkerfa sem veita þér og þínum jafnvel enn meira öryggi og hugarró.

Háþróaðir tengimöguleikar.

Með Bluelink® geturðu stjórnað bílnum með símanum þínum eða röddinni. Hyundai LIVE Services býður upp á upplýsingar um umferð og stæði í rauntíma og margt, margt fleira.

KONA og KONA-rafbíll.

Eftir þínum þörfum. Nýr Kona er fáanlegur sem Hybrid en einnig með öðrum rafknúnum aflrásum, þar á meðal með 48 volta samhliða hybrid-kerfi og sem rafbíll. Og ef þú ert að leita að sportlegra útliti en verðlaunahönnun Kona státar af þá er kraftmikið útlit N Line í anda akstursíþróttabíla nú loksins í boði fyrir Kona.

Rafvæðing Hyundai.

Ertu ekki viss um að rafbíll sé rétti kosturinn fyrir þig? Nánari upplýsingar.

7 ára ábyrgð.

Eins og allir aðrir Hyundai-bílar er nýr Kona Hybrid smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Auk þess er afkastamikil LiPo-rafhlaðan með átta ára eða 160.000 km ábyrgð, hvort sem kemur fyrr. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Vélartækni framtíðarinnar.

Allar nýskráðar Hyundai Kona-gerðir með bensínvélar í Evrópu uppfylla Euro 6d-losunarstaðla.

Kynntu þér nýjan KONA-hybrid nánar.

1 Ábyrgðir Hyundai eiga aðeins við um bíla frá Hyundai sem voru upprunalega seldir af viðurkenndum umboðsaðila Hyundai til endanlegs kaupanda eins og fram kemur í skilmálum okkar í ábyrgðarskírteininu. Átta ára eða 160.000 km ábyrgð á rafhlöðum. Staðbundnir skilmálar gilda. Frekari upplýsingar fást hjá opinberum söluaðila Hyundai.