Hyundai-aflrásir

Allt frá bensínaflrásum til vetnisaflrása.

Hyundai er leiðandi afl í umhverfisvænum aflrásum og við bjóðum upp á breitt úrval rafbíla, hefðbundinna bíla og bíla með mikla afkastagetu. Vélaúrval okkar býður m.a. upp á brunahreyfla (fyrir bensín og dísil), hybrid og rafhlöðuknúnar aflrásir.

Hver er þinn drifkraftur?

Engu skiptir hvaða akstursþarfir þú hefur og hvernig afkastagetu þú vilt – hjá okkur geturðu valið á milli fjölmargra aflrása. Hvaða sess hefur bíllinn í þínum lífsstíl? Og hvað viltu draga mikið úr útblæstri kolefna? Hér geturðu fundið nánari upplýsingar um afar skilvirka brunahreyfla, rafknúnar aflrásir á borð við 48 V hybrid-vélina með samhliða kerfi, hybrid-vélar, tengiltvinnbíla, rafbíla og allt þar á milli.

Rafhlöðuknúnir rafbílar státa af snarpri hröðun, sannfærandi drægni og sístækkandi þjónustukerfi og eru því góður valkostur fyrir þig sem vilt skipta yfir í nútímalega aksturshætti.

Eru með stærri rafhlöðu en hybrid-bílar og henni er einnig hægt að stinga í hleðslu. Eru góður valkostur ef þú vilt fá sveigjanleikann sem fylgir bensínvélinni en líka akstursdrægni á rafmagninu
einu saman.

Hybrid-bílar notast bæði við bensínvél og rafmótor sem knúinn er með rafhlöðu. Meiri sparneytni – án þess að hlaða rafhlöðuna eða breyta aksturslagi þínu.

Brunahreyflar eru hinn hefðbundni valkostur. Eldsneytið fyrir þá er að finna nánast hvar sem er og mikið úrval bílgerða gerir þá að sveigjanlegum valkosti.

Vélar.

Hyundai er leiðandi afl í því að þróa skilvirka og öfluga mótora í öllum bílaflokkum. Kynntu þér enn betur alla valkostina sem bjóðast í aflrásum og hvernig Hyundai er drífandi afl í vélartækni.

Rafhlöðuknúnar aflrásir.

Hér finnurðu allt sem þú þarft að vita um rafhlöðuknúna rafmótora frá Hyundai, upplýsingar um rafhlöðuna sjálfa, hleðslutæknina og allt þar á milli.

Hybrid-aflrásir.

Kynntu þér hvernig hybrid-tæknin virkar og hvort hefðbundinn hybrid-bíll eða tengiltvinnbíll er besti kosturinn fyrir þig.

Bensín- og dísilaflrásir.

Kynntu þér 48 V hybrid-mótora með samhliða kerfi og afkastamikla N-mótora frá Hyundai og hvaða munur er á milli þeirra.

Gírkassar.

Gírkassinn, rétt eins og vélin, er hluti af aflrásinni. Brunahreyflar starfa á snúningshraða sem er of hár fyrir gangsetningu, hemlun og hægari akstur.

Beinskiptingarnar, sem almennt eru léttari og einnig skemmtilegri að mati sumra ökumanna, koma bæði í fimm og sex gíra útgáfum.

Sjálfskiptingar eru almennt þægilegastar, enda velja þær viðeigandi gír án afskipta ökumannsins.

Sjö þrepa DCT-sjálfskiptingin sameinar sparneytni og aksturseiginleika beinskiptingar og þægindi sjálfskiptingar.

Rafmótorar skila miklu togi á mjög litlum hraða og geta virkað með einum gír; þar með sleppur bíllinn undan viðbótarþyngd og íhlutum gírkassa með mörgum gírum.

iMT-beinskipting er notuð með 48 V hybrid-tækninni með samhliða kerfi og þegar eldsneytisgjöfinni er sleppt aftengir hún vélina frá gírkassanum þannig að bíllinn fer í rennslisstillingu.

Sjö ára ábyrgð.

Engu skiptir hvaða aflrás þú velur – samsetning hennar hefur lotið hæstu gæðastöðlum sem hugsast geta. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.