Þjónusta

FRAMTÍÐIN ER ÖRUGG

Hyundai bifreiðar eru smíðaðar eftir ströngustu gæðastöðlum. Það gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum Hyundai upp á eina fullkomnustu ábyrgðarvernd sem völ er á.

7 ára ábyrgð

Hyundai bifreiðar sem keyptar voru af BL ehf. 1. janúar 2021 eða síðar eru með 7 ára ábyrgð.

5 ára ábyrgð

Hyundai bifreiðar sem keyptar voru af BL ehf. fyrir 1. janúar 2021 eru með 5 ára ábyrgð.

Verkstæði

Við leggjum okkur fram um að bjóða persónulega þjónustu með áherslu á að lágmarka stopptíma bílsins. Verkstæði okkar er vel tækjum búið og annast allar þjónustuskoðanir, almennar viðgerðir ásamt ástandskoðunum.

Þjónustuskoðanir

Til að viðhalda ábyrgð framleiðanda er nauðsynlegt að á 15.000 km fresti en þó eigi sjaldnar en 12 mánaða fresti, sé farið með bílinn í þjónustuskoðun. Í skoðuninni er farið yfir þau atriði sem framleiðandi gerir kröfur um og þau lagfærð ef þörf er á ásamt olíuskiptum. Sjá þjónustubók.

Réttinga- og málningarverkstæði

Réttinga- og málningarverkstæði okkar leggur mikinn metnað í vönduð vinnubrögð þar sem þjónusta og hnökralaus samskipti skipta miklu máli.

Ef þörf er á tjónaviðgerð sinnum við ferlinu alveg frá tjónamati til enda. Unnið er eftir CABAS-tjónamatskerfinu og sinnum við viðgerðum fyrir öll tryggingafélögin.

Við sjáum um að útvega viðskiptavinum bílaleigubíl meðan á viðgerð stendur, bæði fyrir hönd tryggingafélaganna og eins hafa viðskiptavinir okkar aðgang að sérstökum kjörum á bílum frá bílaleigu okkar.

Varahlutir

Verslunin afgreiðir varahluti og aukahluti fyrir bílinn þinn. Við kappkostum að eiga alla algengustu varahluti á lager en sérpöntum einnig alla aðra varahluti frá birgjum okkar.

Afgreiðslutími sérpantana eru í flestum tilfellum 2-3 dagar þegar varan er til á lager erlendis.

Hjá okkur starfa sérhæft starfsfólk með víðtæka reynslu og þekkingu á sviði vara- og aukahluta sem tryggja þér ávallt áreiðanlega og persónulega þjónustu. Verslunin er opin frá 7:45-17:00 alla virka daga. Utan opnunartíma er starfræk neyðarvakt sem gefið er samband við frá aðalnúmeri okkar 575-1200.

Tækniupplýsingar

Á þessari síðu getur þú nálgast tækniupplýsingar um alla Hyundai bíla. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig sem notandi.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.