Verkstæði

Áreiðanleiki

Hyundai er umhugað um að meta stöðugt síbreytilegar þarfir viðskiptavina sinna. Þess vegna mun starfsfólk Hyundai hlusta af kostgæfni á hvað viðskiptavinirnir hafa fram að færa og þannig stuðla að ánægju þeirra.

Með því að bjóða 7 ára ábyrgð ásamt vegaaðstoð án endurgjalds er viðskiptavinum Hyundai gefinn kostur á að njóta þess að tilheyra hópi bílaeigenda sem fær fyrsta flokks þjónustu við allar aðstæður yfir allan ábyrgðartíma bílsins og þannig á upplifunin að koma þægilega á óvart í hvert skipti sem viðskiptavinur kemur með bílinn til eftirlits.

Þjónusta

Við leggjum okkur fram um að bjóða persónulega þjónustu með áherslu á að lágmarka stopptíma bílsins. Verkstæði okkar er vel tækjum búið og annast allar þjónustuskoðanir, almennar viðgerðir ásamt ástandsskoðunum.

Þjónustuskoðanir

Við bjóðum upp á Þjónustuskoðanir. Til að viðhalda ábyrgð framleiðanda er nauðsynlegt að á 15.000 km fresti en þó eigi sjaldnar en 12 mánaða fresti, sé farið með bílinn í þjónustuskoðun. Í skoðuninni er farið yfir þau atriði sem framleiðandi gerir kröfum um og lagfærð ef þörf, ásamt olíuskiptum. Sjá þjónustubók.

Bilanagreining

Þrautþjálfaðir aðilar sjá um að skoða og greina bilunina. Mikilvægt er að sem bestar upplýsingar komi frá eiganda/notanda til að bilanagreiningin verði markviss og taki sem stystan tíma. Því hvetjum við þig, ef þú þarft á bilanagreiningu að halda, til þess að hafa samband við okkur.

Skutlþjónusta og bílaleiga

Þegar þú kemur með bílinn þinn í skoðun eða til viðgerðar hjá okkur bjóðum við þér upp á skutlþjónustu- þ.e. að keyra þig heim eða til vinnu. Skutlan fer frá Kauptúni kl. 08:15.

Einnig stendur þér til boða bílaleigubíll á mjög hagstæðum kjörum meðan við þjónustum bílinn þinn. Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni er þetta frábært kostur - kynntu þér verð og úrval bílaleigubíla þegar þú pantar tíma hjá okkur.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.