Búnaður

Ný viðmið.

Nýr Tucson setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla með glæsilegu úrvali fyrsta flokks snjalltækni. Nýttu þér nýjustu tengimöguleikana, öryggisbúnað, þann besta í flokki sambærilegra bíla, og háþróuð akstursaðstoðarkerfi, auk öflugrar rafknúinnar aflrásar.

Þægindi

Þægindi og notagildi.

Nýr Tucson er fjölhæfur með góða tengimöguleika auk þess að bjóða upp á mikil þægindi og notagildi. Hugvitsamlegur búnaður á borð við fjarstýrð fellisæti auðveldar þér að pakka í farangursrýmið fljótt og vel. Hugvitsamlegur búnaður býður upp á einfalda stjórnun farþegasætis frammi í. Hiti í fram- og aftursætum og fjölvirk loft- og hitastýring með frávísandi loftunaropum bjóða upp á þægilegra andrúmsloft í innanrýminu.

Inngöngubúnaður.

Þessi sniðugi búnaður gerir ökumanni kleift að renna til framsæti fyrir farþega og halla því með hnappi á sætinu til að auðvelda aðgengi og auka þægindin.

Sveigjanleg niðurfelling aftursæta.

Aukin þægindi og sveigjanleiki bjóðast með 40:20:40 skiptingu aftursætanna. Enn fremur er boðið upp á fjarstýrða niðurfellingu sæta með handföngum á hliðum farangursgeymslunnar.

Rafknúinn afturhleri með bendistjórnun.

Nú er auðvelt að hlaða í bílinn. Afturhlerinn opnast sjálfkrafa þegar snjalllykillinn greinist nærri í þrjár sekúndur. Þetta er sérlega hentugt þegar þú ert með báðar hendur fullar eftir verslunarferðir. Þú getur meira að segja stillt hversu hátt hlerinn lyftist.

Upplifðu enn betri hita- og loftstýringu.

Það er staðreynd. Við höfum ólíkar þarfir. Sumir vilja meiri hita, aðrir minni. Þess vegna er nýr TUCSON búinn fjölvirkri loft- og hitastýringu. Hún dreifir loftinu með að- og frávísandi loftunaropum svo blásturinn verður mildari en heildarrúmtak loftsins er eins. Þriggja svæða hita- og loftstýring gerir þér svo kleift að skipta bílnum upp í ólík hitasvæði fyrir ökumann og farþega í framsæti og aftursætum.

Tengimöguleikar

Háþróaðir tengimöguleikar.

Að sjálfsögðu hefur allur stafrænn tæknibúnaður Tucson verið uppfærður í nýjustu útgáfu. Speglun snjallsíma og nýjasti tengibúnaður á borð við Bluelink® Connected Car Services gerir þér kleift að stjórna bílnum með snjallsímanum – eða röddinni. Ókeypis fimm ára áskrift að Hyundai LIVE Services fylgir með leiðsögukerfi fyrir stóran 10,25" skjá.

10,25" snertiskjár og snertistjórnun.

Nýi 10,25" snertiskjárinn fellur fullkomlega að snertistjórnborðinu. Öllu er stjórnað með snertingu, hvort sem er leiðsögn, upplýsinga- og afþreyingarkerfi eða loftkælingu.

10,25" stafrænn mælaskjár.

Stafræni mælaskjárinn gefur ökumannsrýminu hátæknilegt yfirbragð. Búið er að fjarlægja umgjörð mælaskjásins til að undirstrika opið yfirbragð innanrýmisins.

Háþróuð raddstýring.

Kveiktu á og stjórnaðu eiginleikum á borð við hitastillingar, upplýsinga- og afþreyingarkerfi, opnun afturhlera og hita í stýri með raddskipunum.

Bluelink® Connected Car Services.

Stjórnaðu bílnum með snjallsímanum – eða með röddinni. Bluelink® Connected Car Services býður upp á hnökralausa tengingu við Tucson með raddstýringu og búnaði sem gerir aksturinn ánægjulegri. Þá gerir Bluelink-forritið þér kleift að stjórna ýmsum eiginleikum. Leiðsögukerfinu fylgir fimm ára áskrift að Hyundai LIVE Services.

Slide
Fjarstýrðar hurðalæsingar.

Gleymdirðu að læsa bílnum? Ekki hafa áhyggjur, þessi bíll mun láta þig vita með því að senda tilkynningu í símann þinn. Þú getur síðan notað PIN-númerið þitt til að læsa eða opna bílinn með einum hnappi.

Slide2
Áfangastaður sendur í bíl.

Ef þinn i10 er búinn leiðsagnarkerfi geturðu notað Bluelink-forritið til að leita að áfangastöðum þegar þú ert ekki í bílnum. Bluelink samstillir síðan leiðina við leiðsögukerfið þitt. Þú sest bara inn og ýtir á hnapp.

Slide3
Finna bílinn minn.

Gleymdirðu hvar þú lagðir bílnum? Þú opnar bara Bluelink-forritið til að sjá hvar bíllinn þinn er – hvar sem er í heiminum.

Slide4
Þjófavarnartilkynning.

Bluelink fylgist alltaf með bílnum þínum. Ef einhver reynir að brjótast inn í i10-bílinn þinn – átt er við hurðalæsinguna og dyrnar opnaðar – sendir Bluelink-forritið tilkynningu í snjallsímann þinn.

Slide5
Upplýsingar um ástand bílsins í símann.

Þú getur framkvæmt fjartengda bilanagreiningu með Bluelink-forritinu. Skýrslan um bílinn sýnir upplýsingar um þrýsting í hjólbörðum, viðvörunarljós vegna bilana, loftpúða, hemlakerfi og margt fleira.

Slide6
Staða bíls.

Þarftu bensín? Athugaðu forritið. Notaðu fjartengdan aðgang að upplýsingum um ástand bílsins þegar þér hentar, svo sem vegalengd að næstu áfyllingu eldsneytis, hvort dyrnar eru opnar/lokaðar eða læstar/ólæstar og hvort farangursgeymsla er opin/lokuð.

previous arrow
next arrow

Tengt leiðaval.

Tengt leiðaval þýðir að leiðin er ekki lengur reiknuð út af örgjörvanum í leiðsögutækinu heldur öflugum þjóni í Hyundai-skýinu. Af hverju er það betra? Af því að nú er hægt að spá með meiri nákvæmni fyrir um umferð, fá nákvæmari komutíma og gera áreiðanlegri endurútreikninga á leiðum.

Leiðsögn síðasta spölinn.

Þú gætir þurft að leggja Tucson einhvers staðar áður en þú kemst á endanlegan áfangastað. Ef þú ert innan 200 m til 2 km geturðu flutt leiðsögnina úr bílnum yfir í Bluelink-forritið. Síminn mun þá leiðbeina þér á áfangastað með gagnauknum veruleika eða Google-kortum.

Öryggi

Besti öryggis- og akstursaðstoðarpakki í flokki sambærilegra bíla.

Vertu enn öruggari í nýjum Tucson með hugvitsamlegum eiginleikum og háþróuðum akstursaðstoðarkerfum sem eru þau bestu sinnar tegundar í flokki sambærilegra bíla. Bíllinn er búinn sjö loftpúða kerfi með hliðarloftpúða á milli framsæta sem er einstakt í flokki sambærilegra bíla. Það kemur í veg fyrir að farþegar í framsætum rekist saman og lágmarkar hættuna á alvarlegum meiðslum.

Aukið öryggi með sjö loftpúðum.

Bíllinn er búinn háþróuðu sjö loftpúða kerfi með hliðarloftpúða á milli framsæta, sem er einstakt í flokki sambærilegra bíla.

Sérstök áhersla á öryggi barna.

Nýr Tucson er búinn hágæða snjalltækni til að tryggja að þú og fjölskylda þín séuð örugg og getið notið hverrar bílferðar til fulls. Við höfum bætt við nokkrum eiginleikum sem leggja sérstaka áherslu á öryggi barnanna.

Öryggisviðvörun við útgöngu.

Þessi sniðugi búnaður getur komið í veg fyrir slys með því að nema ökutæki sem nálgast aftan frá og birta viðvörun á mælaskjánum og hliðarspeglunum auk þess að gefa frá sér hljóðviðvörun.

Viðvörun um farþega í aftursæti.

Úthljóðsnemar greina hreyfingar farþega og geta sent ökumanninum tilkynningu ef börn eða gæludýr gleymast óvart í bílnum.

Afköst

Hvergi fjölbreyttara úrval rafknúinna aflrása.

Nýr Tucson er hannaður fyrir minni losun án þess að það komi niður á akstursánægjunni og honum fylgir fjölbreyttasta úrval rafknúinna aflrása í flokki borgarjeppa. Hægt er að velja á milli 48 volta hybrid-bíls með samhliða kerfi sem knúinn er með bensíni eða dísilolíu, Hybrid eða Plug-in Hybrid. Einnig er hægt að fá bíl með bensín- eða dísilvél.

Rafmögnuð sparneytni. Hybrid-bíllinn er knúinn með 1,6 lítra SmartStream-bensínvél og 44,2 kW rafmótor, með 1,49 kWh LiPo-rafhlöðu sem veitir samtals 230 ha. afköst.

Rafknúinn þegar þú vilt það. Bensínknúinn þegar þú þarft það. Tucson Plug-in hybrid með 1,6 lítra T-GDi vél kom á markað árið 2021.

Sparaðu eldsneyti og dragðu úr losun með 48 V hybrid-bíl með samhliða kerfi. Kerfið vinnur með brunahreyflinum til að skila auknu togi við inngjöf og þegar tekið er aftur af stað eftir að hafa stöðvað.

Meiri afköst. Minni útblástur. CVVD-vélartækni.

Hyundai hefur þróað fyrstu CVVD-tæknina (Continuously Variable Valve Duration). Tæknin hámarkar afköst vélarinnar og sparneytni um leið og hún er vistvæn. Ventlastjórnunartæknin stjórnar tímastillingu opnunar og lokunar eftir akstursskilyrðum.

Play Video

HTRAC™-aldrifskerfi.

Vont veður? Krappar beygjur? Ekkert mál. HTRAC™-aldrifskerfið býður upp á hámarksstjórn og -afköst í beygjum.

Rafræn ESC-stöðugleikastýring.

Njóttu aukinnar stjórnar. Rafræn ESC-stöðugleikastýring eykur þægindi og stjórn með því að draga úr veltu, halla og lóðréttri hreyfingu með stillingu fjöðrunar á hverju hjóli fyrir sig.

Akstursstillingar.

Veldu akstursstillingu sem hæfir stemningunni hverju sinni! Veldu um Normal, Eco eða Sport. Hver stilling skilar mismunandi hröðun, gírskiptingum og sparneytni.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.