Hönnun

Hönnun sem lætur að sér kveða.

Santa Fe er ábúðarmikill í útliti þannig að eftir er tekið. Hann er gerður fyrir öruggan og kraftmikinn akstur. Breið staðan og afgerandi hönnunin fer ekki fram hjá neinum.

Santa Fe í 20 ár – þróun goðsagnar.

Árið 2000 kynnti Hyundai til sögunnar Santa Fe og tók sér um leið stöðu sem leiðandi aðili á jeppamarkaðinum. Santa Fe hefur átt miklum vinsældum að fagna og fagnar nú 20 ára afmæli sínu. Kynntu þér hvernig fyrsti jeppinn okkar hefur þróast í gegnum árin.

Fyrsta kynslóð 2000–2006.

Fyrsta kynslóðin hafði kraftmikið en fágað útlit og var töluvert lengri og breiðari en margir bílar keppinauta okkar sem undirstrikaði hversu vel hann hentaði fyrir akstur í torfærum.

Önnur kynslóð 2006–2012.

Önnur kynslóðin einkenndist af meira afli, meira plássi og endurbættu öryggiskerfi, ásamt aukinni stjórn við mismunandi aksturs- og veðurskilyrði.

Þriðja kynslóð 2012–2018.

Þriðja kynslóðin bauð upp á enn meiri þægindi og gæði til viðbótar við nýja hönnunarstefnu þar sem áherslan var á fágaðar línur og afgerandi fleti.

Fjórða kynslóð 2018 til dagsins í dag.

Einstakt yfirbragð fjórðu kynslóðarinnar er undirstrikað með fáguðu útliti, nýjustu tækni, besta öryggisbúnaðinum í flokki sambærilegra bíla og einstaklega miklu rými.

Hönnun á nýja útlitinu – frá skissu yfir í sýningarsalinn.

Í upphafi hönnunarferlisins voru skissurnar yfirleitt ekki meira en gróf drög að hugmynd sem rissuð var á blað með blýanti. Hönnunarteymið einbeitti sér að því að laða fram mjúkar og fágaðar línur. Þær undirstrika breiða stöðu og styrk bílsins og mynda fullkominn samhljóm.

Previous slide
Next slide

Við nútímavæddum Santa Fe með hágæðabúnaði og aðlaðandi útliti sem við vorum viss um að myndu auka virði hans. Afgerandi og flæðandi línur ljá Santa Fe kraftmikið en jafnframt fágað útlit sem er nákvæmlega það sem bílakaupendur vilja. Auk þess höfum við lagt mikið upp úr því að skapa verulega fjölskylduvænan bíl með fjölmörgum eiginleikum og búnaði sem gera hvern bíltúr ánægjulegan.

Ytra byrði

Kraftmikið en jafnframt fágað útlit.

Nýr Santa Fe hefur verið endurhannaður og er nú stærri, djarfari og áhrifaríkari. Snilldarleg samþætting kraftmikils yfirbragðs og rennilegrar fágunar einkennir breytta hönnun að innan sem utan sem á enga sína líka í flokki jeppa.

Sérstaklega geislandi.

Ný LED-aðalljós eru staðalbúnaður og skarta einstökum T-laga LED-dagljósum sem fanga athyglina á augabragði.

Áræðið yfirbragð.

Ný ílöng hönnun afturljósanna er tengd saman með rauðri umgjörð með endurskini til að leggja áherslu á breiða yfirbygginguna.

Previous slide
Next slide

Djarfir og afgerandi litir að utan.

Veldu það sem þér finnst best. Með val um 9 fallega liti að utan geturðu hannað nýjan Santa Fe eftir þínu höfði. Þrír nýir litir að utan hafa bæst í föngulegan hópinn: jökulhvítur, grábrúnn og lónblár.

Innanrými

Fyrsta flokks efni. Mikið rými. Nýjasta tækni.

Um leið og þú sest í rúmgott innanrými Santa Fe upplifirðu strax: Meira rými, aukin þægindi og meira notagildi í samanburði við eldri gerð. Upplifðu áður óþekktan lúxus mjúkra fyrsta flokks áklæða eða leðurs, hvert sem litið er. Auk þess er hægt að fá Santa Fe með lúxuspakka, fyrstan bíla frá Hyundai.

Aflíðandi miðstokkur

Eitt af því sem helst einkennir nýtt útlit innanrýmisins er aflíðandi miðstokkurinn sem líður inn í leðurklæddan árekstrarpúðann í mjúkri sveigju. Miðstokkurinn er klæddur mjúku áklæði og búinn fjölbreyttum tæknibúnaði sem kallar fram fallega áferð farþegarýmisins.

Stafrænn mælaskjár.

Uppfærsla innanrýmisins er fullkomnuð með nýjum 12,3" stafrænum mælaskjá sem hægt er að sérstilla.

Rennilegt og stílhreint stjórnborð.

Rennileg blöðin gefa mælaborðinu óvenju stílhreint útlit og undirstrika mjúka og breiða hönnun framhlutans.

Sportlegt stýri með fjórum örmum.

Góð tenging og stjórn með sportlegum stjórnhnöppum í stýri.

Previous slide
Next slide

Glasahaldarahlíf.

Haganlega hannað rennilok á nýja miðstokknum gerir þér kleift að hylja annan glasahaldarann og USB-tengi svo snyrtimennskan í innanrýminu sé ávallt í fyrirrúmi.

Geymslubakki í miðstokknum.

Bakkinn undir aflíðandi miðstokknum býður auk þess upp á aðgengilegt geymsluhólf fyrir persónulega muni.

Uppgötvaðu alla kosti þessa sjö sæta jeppa.

Vinsælasti jeppinn okkar í Evrópu, nýr Santa Fe, er ekki bara stærri heldur líka betri. Upplifðu meira pláss og meiri snjalltækni á borð við fyrsta flokks tengimöguleika og einstaklega sparneytnar, nýjar aflrásir. Kynntu þér þetta nánar með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.