Hönnun

Hybrid í hæstu hæðum.

Nýr og einstakur Kona Hybrid hefur nú gengið í gegnum umfangsmikla endurhönnun. Hann skartar stílhreinni og fágaðri línum sem auka enn á áræðið útlitið – og sker sig úr í flokki sambærilegra bíla.

Ytra byrði

Enn glæsilegra útlit.

Ný og áberandi hönnun á ytra byrði sker sig úr með stílhreinni fágun og einstökum hlífðarklæðningum. Ílöng vélarhlífin nær að skörpum línum grillsins sem er breitt og voldugt og gefur nýjum Kona Hybrid kraftmikið útlit. LED-dagljós vísa veginn framundan.

Að framan.

Nýr stuðarinn flæðir mjúklega inn í klæðninguna á brettaköntunum og myndar einstakt og umlykjandi brynvarið belti undir grillinu.

Að innan.

Sportlegar útlínurnar eru undirstrikaðar með sjónrænni tengingu á milli axlafellinganna og skarpa og stílhreina framhlutans.

Að aftan.

Nýi afturstuðarinn fylgir hönnunarhugmyndinni um brynvörn sem er áberandi á hliðum og að framan – og er auðkennd með nýrri, kraftmikilli og sanseraðri hlíf.

Slide
Samlit klæðning.

Eitt af glæsilegri einkennum endurhönnunar Kona-rafbílsins eru lakkaðar brettakantaklæðningarnar sem ljá honum fágað og afgerandi yfirbragð.

Slide2
Rennileg ný LED-aðalljós.

Ný LED-aðalljós og nettari dagljós undirstrika auðþekkjanlegt útlit Kona-rafbíls með glæsilegri ljósahönnun.

Slide3
Nýjar 17" álfelgur.

Sérhannaðar 17" álfelgurnar eru áræðnar og einstakar með hárfína straumlínulögun sem sameinar skilvirkni og stíl.

Slide4
Afturstuðari og hlíf.

Glæsilegur afturstuðarinn flæðir mjúklega inn í klæðninguna á brettaköntunum. Áherslulistinn dregur svo athyglina að endurhannaðri hlífinni.

Slide5
Stílhrein, ný afturljós.

Rennilegu nýju afturljósin skarta nú ílangri hönnun sem kallast á við einstaka ljósahönnunina að framan.

previous arrow
next arrow
Previous slide
Next slide

Innanrými

Framúrskarandi tengimöguleikar í bland við fáguð þægindi.

Nýja innanrýmið í Kona er nútímalegra og fágaðra en í forveranum með áherslu á fjölhæfni, þægindi og tengingu við umheiminn. Sterkbyggður en jafnframt fágaður – nýja hönnunin er í stíl við glæsilegt yfirbragðið og hentar athafnasömum fullkomlega. Og þegar kemur að snjalltækni geturðu valið úr öllu því nýjasta í tengimöguleikum og þægindum.

10,25" stafrænn mælaskjár.

Glæsilegur, 10,25 tommu stafrænn mælaskjárinn undirstrikar hátæknilegt innanrýmið. Litasamsetningin breytist eftir því hvaða akstursstilling er valin: Eco eða Sport. Skífan hægra megin birtir upplýsingar um hybrid-aflrásina á borð við stöðu hleðslunnar og orkunotkun.

10,25“ snertiskjár.

Með 10,25“ snertiskjánum er auðvelt að nálgast eiginleika bílsins, upplýsingar, leiðsögn og uppáhalds öppin þín og tónlist í gegnum snjallsímaspeglun.

Nútímalegar hönnunaráherslur í innanrýminu.

Einn af hápunktum hönnunar í innanrýminu er stemningslýsingin sem lýsir upp miðstokkinn og fótrýmið í Kona Hybrid.

Nýir litir í innanrými.

Í nýjum Kona má velja á milli smekklegra lita og efna. Í boði eru svartar eða tveggja tóna ljósdrapplitaðar klæðningar í innanrými sem og brúndrapplitaðar leðurklæðningar.

Slide
Svartur.

Kolgráir tónarnir í svörtum sætisáklæðunum skapa skemmtilega áferð. Leðuráklæði er aukabúnaður en það er í boði með glæsilegri köflóttri áferð sem endurspeglast einnig í götuninni á efninu.

Slide2
Ljósdrapplitað í tveimur tónum.

Einnig er hægt að velja ljósdrapplitaða klæðningu í innanrýmið sem kallast skemmtilega á við nýtt og ferskt yfirbragðið á hurðarbyrðum og sætum.

Slide3
Brúndrapplitað.

Brúndrapplituð leðursæti ásamt miðstokki í sama lit er aukabúnaður sem ljær innanrýminu náttúrulegt yfirbragð.

previous arrow
next arrow

Kynntu þér nýjan KONA Hybrid nánar.