Aldrifsútfærsla IONIQ 5 er knúin með tveimur rafmótorum sem sambyggðir eru fram- og afturöxlum og skila 325 HÖ. (239 kW) og tafarlausu 605 Nm togi.
Afl: 74 kW að framan / 165 kW að aftan
Tog: 255 Nm að framan / 350 Nm að aftan
Í þessum rafbíl koma saman frábær afköst, fjölbreytt úrval hugvitsamlegrar tækni og allt að 481 km akstursdrægni. Þetta er bíll sem kemur þér lengra með hraðari hleðslu og rennilegum stíl.
Hér fer ný gerð bíls sem býður upp á frábær afköst, hrífandi hönnun og einstaka aksturseiginleika ásamt 800 V rafhlöðukerfi sem skilar ofurhraðri hleðslu, allt byggt á glænýju byggingarlagi sem markar þáttaskil í orkuskiptunum.
IONIQ 5 skilar sportlegri hröðun: fer úr 0 í 100 km/klst. á aðeins 5,2 sekúndum í aldrifsútfærslunni sem búin er langdrægri rafhlöðu.
Glæný tækni Hyundai skilar IONIQ 5 allt að 507 kílómetra drægi þegar hann er búinn afturhjóladrifi og langdrægri rafhlöðu.
IONIQ 5 býður upp á frábæra aksturseiginleika og sportleg afköst með 185 km/klst. hámarkshraða.
Aldrifsútfærsla IONIQ 5 er knúin með tveimur rafmótorum sem sambyggðir eru fram- og afturöxlum og skila 325 HÖ. (239 kW) og tafarlausu 605 Nm togi.
Afl: 74 kW að framan / 165 kW að aftan
Tog: 255 Nm að framan / 350 Nm að aftan
Tvíhjóladrifinn IONIQ 5 með langdrægri rafhlöðu er knúinn áfram með 160 kW rafmótor sem sambyggður er afturöxli og skilar 217 HÖ. og tafarlausu 350 Nm togi. Afl: 160 kW að aftan Tog: 350 Nm Hröðun: 0–100 km/klst. á 7,4 sekúndum
IONIQ 5 er einn af fyrstu bílunum sem framleiddir eru með 800 V rafhlöðukerfi. Hleðslan tekur mjög stuttan tíma, afköstin eru mikil og hnökralaus og fullkomið jafnvægi er á milli þyngdar og rýmis.
Í boði með aldrifi með tveimur rafmótorum eða tvíhjóladrifi með einum rafmótor.
HTRAC-aldrif Hyundai skilar IONIQ 5 góðri akstursgetu í torfærum og tryggir að þú kemst leiðar þinnar óháð aðstæðum.
Hámarksdrægni í akstri. Skiptirofar gera þér kleift að stilla endurheimt hemlaorku til að nota rafmótorinn til að hægja á bílnum og hlaða rafhlöðuna.
IONIQ 5 er fyrsti bíllinn sem byggður er með E-GMP (Electric-Global Modular) undirvagni Hyundai. Þetta sérstaka rafbílabyggingarlag býður upp á hraðari hleðslu, aukna akstursdrægni, rúmbetra innanrými og betri stjórn. Staðsetning rafhlöðupakkans innan hjólhafsins tryggir bestu mögulegu þyngdardreifingu á milli framhluta og afturhluta og lága þyngdarmiðju sem skilar sér í betri stjórn.
E-GMP undirvagninn hentar fjölbreyttu úrvali bíla, akstursvegalengda og lífsstíla með stöðluðu rafhlöðukerfi sem búið er tækni sem er sérhönnuð fyrir rafbíla.
Við nýttum plássið sem losnaði þegar brunahreyfillinn var tekinn í burtu til að staðsetja akstursmótorinn lágt. Rafhlaðan liggur einnig lágt innan undirvagnsins og býður þannig upp á fyrirtaks þyngdardreifingu á milli framhluta og afturhluta og lága þyngdarmiðju til að tryggja meiri stjórn og aukinn stöðugleika á miklum hraða.
Einstök rafbílahönnun einkennir E-GMP undirvagninn, svo sem stutt skögun og langt hjólhaf með árekstraröryggisbúnaði, stóru farþegarými og öruggri rafhlöðu.
Flatt gólfið býður upp á fjölbreytta stillingu fram- og aftursæta, allt eftir því hvort verið er að taka nestisstopp eða aka langa vegalengd í striklotu. Hverjar sem aðstæðurnar eru er upplifunin þó alltaf rafmögnuð.
Meira fótarými myndast vegna lágrar staða rafhlöðunnar og flats gólfs þegar upphækkun fyrir drifskaft er ekki lengur til staðar.
E-GMP undirvagn býður upp á innanrými sem aðeins er að finna í rafbílum og sem skilar sér í nýrri rafknúinni samgönguupplifun fyrir viðskiptavini okkar. Plássfrekt loftkælingarkerfið hefur verið fært úr innanrými bílsins í það rými sem vélin fyllti áður með samsvarandi aukningu í rými fyrir farþega í framsæti.
Hægt er að hlaða heima við yfir nótt eða bæta á hleðsluna á næstu hraðhleðslustöð á örfáum mínútum. IONIQ 5 býður upp á fjölbreytta hleðslumöguleika, allt eftir því hvernig rafmagn er á heimilinu eða hvernig hraðhleðslustöðvum þú hefur aðgang að. Bíllinn er búinn nýju 800 V rafhlöðukerfi sem býður upp einn hraðasta hleðslutímann í dag og er auk þess samhæft 400 V hleðslu og hleðslu með riðstraumi.
Fyrsta einkaleyfisvarða tækni Hyundai styður bæði 400 V og 800 V hleðslustöðvar án sérstakra viðbótaríhluta eða millistykkja.
800 V rafhlöðukerfi IONIQ 5 býður upp á hleðslu fyrir 100 km akstur á fimm mínútum! Kerfið styður hleðslu upp í allt að 220 kW með jafnstraumi á leifturhleðslustöð sem skilar hleðslu úr 10% í 80% á 18 mínútum.
Hleðsla heima við yfir nótt eða áfylling á bílastæði matvörubúðarinnar. Öflugur innbyggður 11 kW hleðslubúnaður býður upp á sveigjanleika við riðstraumshleðslu.
Stoppaðu stutt við á hraðhleðslustöðvum. 400 V og 800 V tækni býður upp á sveigjanleika með notkun mismunandi hleðslubúnaðar.
Með langdrægri rafhlöðu (77,4 kWh) býður 800 V rafhlöðukerfi IONIQ 5 upp á eftirfarandi hleðslutíma: 350 kW jafnstraumsstöð: hleðslutími 18 mínútur úr 10% í 80% Drægi eftir fimm mínútna hleðslu: 111 km. 50 kW jafnstraumsstöð: hleðslutími ein klukkustund úr 10% í 80% Drægi eftir fimm mínútna hleðslu: 28 km.
Með hefðbundinni rafhlöðu (58 kWh) býður 800 V rafhlöðukerfi IONIQ 5 upp á eftirfarandi hleðslutíma: 350 kW jafnstraumsstöð: hleðslutími 18 mínútur úr 10% í 80% Drægi eftir fimm mínútna hleðslu: 88 km. 50 kW jafnstraumsstöð: hleðslutími 43 mínútur og 30 sekúndur úr 10% í 80% Drægi eftir fimm mínútna hleðslu: 27 km
Heimahleðslustöð eða riðstraumshleðslustöð fyrir almenning (EU, þriggja fasa, 230 V): Hleðslutími: sex klukkustundir og níu mínútur.
Heimahleðslustöð eða riðstraumshleðslustöð fyrir almenning (EU, þriggja fasa, 230 V): Hleðslutími: fimm klukkustundir.
Kynntu þér frekari upplýsingar um hleðslutíma, uppsetningu heimahleðslustöðva, snúrur og klær og hvað það kostar að eiga og reka rafbíl.
IONIQ 5 endurskilgreinir aksturinn með fjölbreyttu úrvali hagnýts búnaðar sem er jafnt einstakur sem hugvitsamlegur og ánægjulegur í notkun. IONIQ 5 styður einnig við sjálfbæran lífsstíl með V2L-búnaðinum. Hann gerir þér kleift að nota eða hlaða raftæki og rafknúin farartæki, s.s. rafmagnshjól, -hlaupahjól og útilegubúnað, bæði á ferð og í kyrrstöðu.
V2L-hleðslubúnaður IONIQ 5 hefur innbyggða 230 V kló. Þú getur notað hann til knýja eða hlaða hvaða rafbúnað sem er sem hefur allt að 3,6 kW rafhlöðu.
Með straumbreyti sem tengdur er við hleðslutengið að utan er hægt að hlaða búnað með að allt að 3,6 kW rafhlöðu þótt búið sé að drepa á bílnum.
Eftir þínum þörfum. Bæði ökumaður og farþegi í framsæti geta stillt hitastig fyrir sig. Þú velur hitastigið og kerfið sér um allt hitt.
Láttu fara vel um þig. Framsætin eru með átta stefnustillingum og er hægt að leggja alveg aftur með einum smelli, fullkomið fyrir orkublundinn. Stuðningur við kálfa lyftist upp þegar sætisbakið er í neðstu stöðu. Aftursætin eru einnig rafdrifin.
Við nýttum plássið sem bensínvélin skildi eftir sem viðbótargeymslu fyrir farangur. Önnur farangursgeymsla að framan býður upp á 57 lítra aukafarangursrými.
Farangursgeymsla IONIQ 5 er 527 lítrar og hægt er að stækka hana í 1600 lítra þegar búið er að leggja aðra sætaröðina niður. Einnig er hægt að renna annarri sætaröðinni fram um 135 mm og leggja sætin niður með 6:4 skiptingu þegar þörf er á auknum sveigjanleika.
Rafknúinn afturhlerinn opnast sjálfkrafa þegar snjalllykillinn greinist nærri í þrjár sekúndur. Þetta er sérlega hentugt þegar þú ert með báðar hendur fullar eftir verslunarferðir.
Sérstök loftunarop fyrir farþega í aftursæti auka þægindi í lengri ferðum.
IONIQ 5 er búinn stórkostlegu úrvali snjalltækni sem býður upp á endalausa tengimöguleika. Nýjasta tengitækni á borð Bluelink Connected Car Services gerir þér kleift að stjórna bílnum með snjallsímanum – eða raddskipunum. Ókeypis þriggja ára áskrift að Hyundai LIVE Services fylgir einnig með leiðsögukerfinu.
Stafrænn 12,25" mælaskjár birtir nauðsynlegar upplýsingar á borð við hraða og hleðslustöðu rafhlöðunnar þar sem þú sérð þær best: að framan og fyrir miðju.
12,25" skjár veitir einfaldan aðgang að öllum tengimöguleikum fyrir hita- og loftstýringu. Öll stjórntæki er snertistýrð til að skapa snyrtilegt og nútímalegt útlit.
Vandað BOSE-hljóðkerfi skilar kristaltæru hljóði í gegnum átta sérstillta, kraftmikla hátalara.
Hraðhleðslutengið í miðstokknum býður upp á aukið öryggi með kælibúnaði sem kemur í veg fyrir að snjallsímar ofhitni.
Þessi búnaður hringir sjálfkrafa í neyðaraðstoð ef þú lendir í slysi og loftpúðarnir fara í gang. Þú getur líka ýtt á SOS-hnappinn til að óska eftir neyðaraðstoð hvenær sem er, alla daga ársins.
Bíllinn er með 12 V rafmagnsinnstungu og tvö USB-hleðslutengi að framan, þar af eitt sem styður gagnaflutning. Við aftursætin eru tvö USB-hleðslutengi.
Stjórnaðu bílnum með snjallsímanum – eða með röddinni. Nýjasta Bluelink-uppfærslan gerir þér kleift að fullnýta kosti Connected Car Services. Þá gerir Bluelink-forritið þér kleift að stjórna ótal snjöllum eiginleikum. Leiðsögukerfinu fylgir einnig þriggja ára áskrift að Huyndai LIVE Services með upplýsingum um umferð, bílastæði og hleðslustöðvar í rauntíma.
Akstursleiðir eru reiknaðar út á öflugum netþjóni í Bluelink®-skýinu. Þetta tryggir að hægt að spá með meiri nákvæmni fyrir um umferð, fá nákvæmari komutíma og gera áreiðanlegri endurútreikninga á leiðum.
Gagnagrunnur leiðsögukerfis okkar hefur verið stækkaður þannig að nú sýnir hann fleiri hleðslustöðvar á kortinu, sýna hverjar eru lausar og hvað hleðsla á hverri stöð mun nokkurn veginn taka. Þú smellir einfaldlega á stöðvartáknið til að sjá hvernig hleðsla er í boði.
Vertu fljótari að finna bílastæði – og sparaðu þér tíma og vesen. Þessi eiginleiki hjálpar þér að finna og bera saman bílastæðamöguleika í bílastæðahúsum, á bílastæðum og við götuna.
Vistaðu allt eins og þú vilt hafa það. Nú getur þú vistað kjörstillingar fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi, t.d. stillingar tungumáls, Bluetooth og leiðsagnar.
Kveiktu á og stjórnaðu eiginleikum á borð við stillingar miðstöðvar og loftkælingar, upplýsinga- og afþreyingarkerfi, hitun hliðarspegla og hita í stýri með raddskipunum.
Stjórnaðu bílnum þínum beint úr lófanum. Bluelink-forritið tengir þig við bílinn í gegnum snjallsímann til að gera þér kleift að læsa hurðunum, athuga hleðslustöðu rafhlöðunnar, forhita bílinn á köldum dögum og ótalmargt fleira. Lestu áfram til að fá frekari upplýsingar.
Fjarstýrð hleðsla gerir ökumönnum IONIQ 5 kleift að hefja og stöðva hleðslu með einum hnappi í farsímaforritinu.
Er kalt úti? Ekkert mál. Þú getur stillt hvenær þú vilt forhita bílinn, afísa rúðurnar og kveikja á hita í stýri rafrænt þegar bíllinn er í sambandi við rafmagnsinnstungu – t.d. í bílskúrnum heima hjá þér. Þetta er notalegt og sparar einnig rafhlöðuorku sem annars þyrfti að nota síðar til að hita bílinn á ferðinni.
Ekki viss um hve mikið drægi er eftir? Þú getur kannað hversu mikið drægi hleðsla rafhlöðunnar býður upp áður en þú leggur í hann og skipulagt ferðina út frá því.
Ef þú þarft að leggja IONIQ 5 í einhverri fjarlægð frá áfangastað geturðu flutt leiðsögnina úr bílnum í forritið. Þannig færðu nákvæma leiðsögn í símanum þangað sem þú vilt fara, með auknum raunveruleika eða Google-kortum.
Þú getur notað Bluelink-forritið til að leita að áfangastöðum þegar þú ert ekki í bílnum. Bluelink samstillir því næst leiðina við leiðsögukerfi IONIQ 5. Þú sest bara inn og ýtir á hnapp.
Gleymdirðu hvar þú lagðir bílnum? Þú opnar bara Bluelink-forritið til að sjá hvar bíllinn þinn er – hvar sem er í heiminum.
Gleymdirðu að læsa bílnum? Engar áhyggjur, bíllinn lætur þig vita með því að senda tilkynningu í símann þinn. Síðan geturðu notað PIN-númerið þitt til að læsa eða opna Hyundai með hnappi í Bluelink-forritinu.
Bluelink fylgist alltaf með bílnum þínum. Ef einhver reynir að brjótast inn í IONIQ 5 – átt er við hurðalæsinguna og dyrnar opnaðar – færðu tilkynningu í snjallsímann.
Þú getur framkvæmt fjartengda bilanagreiningu með Bluelink-forritinu. Skýrslan um bílinn getur sýnt upplýsingar um þrýsting í hjólbörðum, viðvörunarljós vegna bilana, loftpúða, hemlakerfi og margt fleira.
Njóttu hámarksöryggis og þæginda með fyrsta flokks öryggis- og akstursaðstoðarbúnaði Hyundai-línunnar. Með háþróuðum Hyundai SmartSense-akstursaðstoðarkerfum er IONIQ 5 búinn nýjasta öryggis- og akstursaðstoðarbúnaðinum til að tryggja enn meiri hugarró. IONIQ 5 er einnig fyrsti bíllinn frá Hyundai sem er búinn annars stigs sjálfvirkri öryggistækni.
Háþróaður sjónlínuskjárinn vísar þér veginn á öruggan máta með upplýsingum á borð við leiðsögn og viðvaranir í beinni sjónlínu á veginn.
IONIQ 5 er búinn þjóðvegaakstursaðstoð II og er þar með fyrsti bíllinn frá Hyundai með annars stigs sjálfvirkri öryggistækni, sem stjórnar hraða og fjarlægðum og aðstoðar við akreinaskipti.
Er stæðið þröngt? Er lítið pláss á bílaþvottastöðinni? Ekkert mál. Umhverfismyndavélakerfið býður upp á 360 gráðu yfirsýn og auðveldar tilfærslu í þröngum rýmum til muna.
IONIQ 5 er búinn sjö loftpúðum, þar á meðal hliðarpúða í miðstokki til að draga úr hættu á meiðslum við það að höfuð farþega skelli saman.
Nú sérðu hvað er að gerast til vinstri og hægri fyrir aftan bílinn á skjá á stafræna mælaborðinu. Myndavélarnar verða virkar þegar stefnuljósin eru sett á við akreinaskipti.
FCA-árekstraröryggiskerfið greinir veginn fram undan með ratsjá og myndavél og hemlar sjálfkrafa þegar það greinir óvænta hemlun hjá bílnum fyrir framan eða gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk á veginum.
Kerfið notar tvo ratsjárskynjara á neðanverðum afturstuðaranum til að vara við umferð á blindsvæðinu. Ef stefnuljós er gefið við slíkar aðstæður virkjar kerfið hljóðviðvörun og hemlar til að koma í veg fyrir árekstur.
Þegar bakkað er út úr stæðum þar sem skyggni er lítið varar kerfið ekki aðeins ökumanninn við þegar bílar nálgast frá hlið – heldur virkjar það einnig hemlana sjálfkrafa.
Ef bakkmyndavélin eða úthljóðsnemar að aftan greina hindrun birtir árekstraröryggiskerfi að aftan fyrir bílastæði viðvörun og beitir hemlunum, ef með þarf.
Notar myndavélina framan á bílnum til að greina vegamerkingar. Ef þú ekur óvart út úr akrein varar kerfið þig við og beitir stýrisátaki til að beina bílnum aftur inn á akreinina.
Meira öryggi, minna stress. Heldur forstilltri fjarlægð frá næsta ökutæki á undan með því að minnka eða auka hraðann sjálfkrafa að tilgreindum mörkum. Í mjög hægri umferð og umferðarteppum viðheldur kerfið stilltri fjarlægð.
Þessi hugvitssamlegi eiginleiki kemur í veg fyrir slys með því að greina ökutæki sem nálgast aftan frá og læsa afturhurðunum tímabundið með barnalæsingu þannig að farþegar komist einungis út úr bílnum þegar það er óhætt.
Greinir ökutæki úr gagnstæðri átt og ökutæki fram undan og skiptir sjálfkrafa á lágu ljósin. Þegar engin ökutæki greinast lengur er aftur kveikt á háljósunum til að hámarka útsýnið.
1 Raforkunotkun fyrir IONIQ 5 58 kWh (tvíhjóladrif): Blandaður akstur 16,7 kWh/100 km; akstursdrægni á rafmagni: 384 km; losun koltvísýrings í blönduðum akstri: 0 g/km; koltvísýringsflokkur: A+ (WLTP-prófun).
2 Raforkunotkun fyrir IONIQ 5 77,4 kWh (aldrif): Blandaður akstur 17,7 kWh/100 km; akstursdrægni á rafmagni: 481 km; losun koltvísýrings í blönduðum akstri: 0 g/km; koltvísýringsflokkur: A+ (WLTP-prófun).
3 Raforkunotkun fyrir IONIQ 5 77,4 kWh (tvíhjóladrif): Blandaður akstur 16,8 kWh/100 km; akstursdrægni á rafmagni: 507 km; losun koltvísýrings í blönduðum akstri: 0 g/km; koltvísýringsflokkur: A+ (WLTP-prófun).
4 Raforkunotkun fyrir IONIQ 5 58 kWh (aldrif): Blandaður akstur 18,1 kWh/100 km; akstursdrægni á rafmagni: 360 km; losun koltvísýrings í blönduðum akstri: 0 g/km; koltvísýringsflokkur: A+ (WLTP-prófun).
5 Hleðslutími ræðst af hleðsluskilyrðum, þar á meðal gerð og ástandi hleðslutækis, hitastigi rafhlöðu og umhverfishitastigi.
Hyundai á Íslandi Kauptúni 1 210 Garðabæ 575 1200 [email protected]
Neyðarþjónusta Króks utan opnunartíma:
822 8010
Höfundarréttur © 2024 Hyundai á Íslandi. Allur réttur áskilinn.