Árekstraröryggi

Hannaður til að vernda þig.

Í hönnunarferlinu fyrir nýja bílgerð huga verkfræðingar Hyundai sérstaklega að því hvernig bíllinn mun þola árekstur. Hönnun bílsins tryggir að fyrsti varnarveggurinn sé bíllinn sjálfur og að hann geti ávallt tryggt öryggi þitt og farþega þinna.

Bygging

Innbyggt öryggi.

Hver einasti bíll er hannaður til að þola högg og verja farþega sína, sama hvar þeir sitja.

Sérstyrktur undirvagn.

Undirvagninn er grunngrind hvers bíls. Hyundai notar afar sterkar stálplötur sem eru sérmótaðar til að taka í sig högg og tryggja öryggi þitt.

Sérhönnuð krumpusvæði.

Í öllum Hyundai-bílum eru sérstök krumpusvæði í framendanum, en þeim er ætlað að taka í sig orkuna sem myndast við árekstur og verja þannig bæði þig og farþega þína.

Lágmörkuð hætta á veltum.

Hönnun Hyundai-bíla miðar að því lágmarka hættuna á veltu og lykill í því er lág þyngdarmiðja.

Loftpúðar

Víðtækar árekstrarvarnir.

Í hverri bílgerð er að finna a.m.k. sex loftpúða (tvo að framanverðu, tvo í hliðum og tvö loftpúðatjöld) sem verja þig allan hringinn. Háþróaðir loftpúðar að framan ákvarða hvenær og hvernig á að auka þrýstinginn ef slys verður með því að greina stellingu allra farþega, notkun öryggisbeltis og hversu harður áreksturinn er. Í sumum bílgerðum er einnig hægt að fá háþróað loftpúðakerfi með sjö loftpúðum. Í því kerfi er hliðarloftpúði í fyrstu sætaröð til viðbótar.

Hliðarloftpúðar í fyrstu sætaröð.

Hliðarloftpúðinn í fyrstu sætaröð er staðsettur hægra megin við ökumannssætið og hann blæs út við hliðarárekstur. Þetta kemur í veg fyrir að farþegar rekist saman og lágmarkar hættuna á alvarlegum meiðslum.

eCall

Sjálfvirk tilkynning til neyðarþjónustuaðila.

Ef slys á sér stað sendir þessi sjálfvirka þjónusta ekki aðeins tilkynningu til neyðarþjónustuaðila heldur sendir auk þess upplýsingar um nákvæma staðsetningu bílsins, tímasetningu slyssins og nánari upplýsingar um bílinn, t.d. hvaða eldsneytisgerð hann notar.

Kynntu þér öryggisbúnaðinn.

Nánari upplýsingar um háþróuð og rafknúin öryggiskerfi Hyundai sem afstýra slysum.

Kynntu þér hvernig Hyundai fjárfestir í rannsóknarstarfi sem heldur áfram að bæta öryggið í hverri bílgerð fyrirtækisins.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.