Nýr IONIQ 3

Meira en frelsi

Nýr IONIQ 3.

Meira en frelsi.

Drægni allt að

496 km

0 upp í 100 km/klst á

9 sek

Bættu hvern akstur
Á hverjum degi​

Glænýr Hyundai IONIQ 3. Fullrafmagnaður. Nettur. Rúmgóður. IONIQ 3 sameinar djarfa hönnun við þægilega innréttingu með einfaldri og notendavænni tækni sem lyftir daglegum akstri á hærra stig. Þetta er bíll fyrir þá sem vilja meira en bara venjulegan bíl.

Einfaldleiki og stíll

Þetta er
meira en frelsi

Kynntu þér nýjan Hyundai IONIQ 3

IONIQ 3 - að aftan
IONIQ 3 - að innan

Vertu þú sjálf/ur

Njóttu stílsins og rýmisins til að gera þína hluti á þinn hátt

Sumir líta á frelsi sem áfangastað – en með IONIQ 3 gerðum við það að upphafsreitnum. IONIQ 3 sameinar fremstu drægni í sínum flokki og rúmgott, sveigjanlegt farþegarými, og veitir þér ósvikin þægindi fyrir fimm farþega ásamt rými og stíl til að vera þú sjálf/ur.

Frelsi til að fara lengra

Njóttu allt að 496 km drægni1

Veldu afl og drægni sem hentar þér

Veldu á milli 42,2 kWh rafhlöðu með allt að 343 km drægni
eða 61 kWh rafhlöðu með allt að 496 km drægni.1

km drægni
0

Djarft Aero Hatch
Straumlínulagað útlit

Hannað fyrir loftaflfræðilega skilvirkni og innra rými

Art of Steel hönnunarmálið

Með innblæstri frá hrárri spennu og hreinleika stálframleiðslunnar eru útlitsfletirnir minnkaðir niður í fáar úthugsaðar formheildir
sem skapa sterk og nákvæm sjónræn áhrif – og endurspegla náttúrulega eiginleika málmplatna.

IONIQ 3 - stálhönnun

Að gefa stálinu sál

Hönnun ytra byrðis

IONIQ 3 lyftir daglegum akstri á hærra plan með straumlínulöguðu útliti nýja "Aero Hatch" yfirbyggingarstílsins
– sem er prýddur einkennandi pixla-ljósabúnaði IONIQ fjölskyldunnar og fjórum miðpunktum að framan og aftan
sem vísa í bókstafinn "H" á morsekóða.

IONIQ 3 - Innanrými

Velkomin í einstakt rými

Innrými hannað eins og híbýli

Nettur að utan og rúmgóður að innan – sveigjanlegt innrými IONIQ 3 er hannað fyrir þægindi. Hönnuðir okkar fylgdu "Furnished Space" hugmyndinni og röðuðu þáttum upp eins og húsgögnum til að skapa hlýlegt og einfalt rými. Langt hjólhaf og flatt gólf skapa rúmgott fóta- og höfuðrými, en stórt 441 l farangursrými eykur hagnýtt notagildi í daglegum akstri.

Fullkomin blanda
þæginda og nýsköpunar

Aflæstu bílinn með símanum Þú getur notað snjallsímann til að læsa og opna hurðunum – og þær opnast einnig sjálfkrafa þegar þú nálgast bílinn. Auk þess geturðu auðveldlega deilt Hyundai Digital Key 2 með fjölskyldu og vinum.
Njóttu fjölda snjallra geymslulausna Margvíslegar geymslur, opin miðjustokkur og mælaborð og staflanlegir glasahaldarar eru aðeins nokkrir af þeim fjölmörgu geymslueiginleikum sem gera hverja ferð þægilega.
Hleðsla fyrir hvaða tæki sem er í bílnum með V2L Þú getur knúið hvaða tæki sem er hvar sem er eða hlaðið rafbúnað allt að 3,6 kW með innbyggðu 230V tengli eða ytri hleðslutengli IONIQ 3, sem byggir á Vehicle-to-Load (V2L) tækninni.
Hlustaðu á uppáhalds lagið þitt í alvöru gæðum Upplifðu áhrifaríkan hágæða hljóm með BOSE® Premium Sound kerfinu. Hver hátalari er hannaður til að spila ákveðin tíðnisvið – lág, miðlungs eða há – þannig að allir hlutar vinna saman og skapa ríkulega og lifandi hljómupplifun.

Rúmgott farangursrými

samtals 441 lítrar

Tökum tengingar
á nýtt stig

Gerum stafræna tækni einfalda og óaðfinnanlega

IONIQ 3 - Margmiðlun

Snjallari og tengdari akstur

Nýja Pleos Connect afþreyingar- og upplýsingakerfið

Njóttu skarpra grafíkmynda, leiðandi skjáa og óaðfinnanlegrar tengingar með
raddstýringu sem nýtir gervigreind. IONIQ 3 markar frumraun Pleos Connect kerfisins
í Evrópu – og setur ný viðmið í sínum flokki. Veldu á milli 12,9" eða 14,6" skjás fyrir
leiðandi aðgang að bílaaðgerðum, leiðsögn og fjölbreyttum stillingarmöguleikum.

Öryggi á heimsmælikvarða

Háþróuð akstursaðstoðarkerfi
Hyundai SmartSense

Til að auka hugarró býður IONIQ 3 upp á nýjustu öryggis- og akstursaðstoðarkerfin. Hyundai SmartSense, framúrskarandi háþróuðu akstursaðstoðarkerfin okkar, gera hvern akstur auðveldari, öruggari og afslappaðri – frá því að greina og vara þig við hugsanlegum hættum yfir í að aðstoða við hemlun og stýringu.

IONIQ 3 í keyrslu
IONIQ 3 í bílastæði

Skráðu þig og fáðu allar nýjustu IONIQ 3 fréttirnar

Vertu með á nótunum

Algengar spurningar

Hyundai IONIQ 3 er nettur rafbíll sem sameinar djarfa hönnun, rúmgott og þægilegt innanrými og notendavæna tækni.

IONIQ 3 er hannaður í Evrópu og framleiddur í İzmit-verksmiðju Hyundai Motor í Tyrklandi, sem undirstrikar áherslu Hyundai Motor Europe á þróun og framleiðslu á heimaslóðum. Með skilvirkum rafdrifnum aflrásum sem skila allt að 107,8 kW (147 hestöflum) afli og 250 Nm togi, og hámarkshraða upp á 169 km/klst, er IONIQ 3 hannaður til að falla óaðfinnanlega að nútíma evrópskum lífsstíl.

Tæknin í IONIQ 3 er hönnuð til að einfalda daglegan akstur fremur en að flækja hann. Eiginleikar á borð við Hyundai Digital Key 2 veita lyklalausan aðgang í gegnum snjallsíma eða snjalltæki, en Plug & Charge, innbyggður leiðarvalskostur fyrir rafbíla og Vehicle-to-Load (V2L) virkni að innan og utan styðja við óaðfinnanlega akstur- og hleðsluupplifun.

Pleos Connect er afþreyingar- og upplýsingakerfi af nýrri kynslóð fyrir Hyundai bíla, byggt á Android Automotive OS, með einstaka, sérsníðanlega og notendavæna eiginleika. Hyundai IONIQ 3 er fyrsta evrópska Hyundai gerðin sem býður upp á kerfið.

Helstu hápunktar Hyundai Pleos Connect kerfisins eru: Foruppsett forrit fyrir margmiðlun, leiðsögn, símtengingu, Apple CarPlay og Android Auto og fleira. Pleos Connect App Market: Opinn forritamarkaður sem gerir þriðja aðila kleift að þróa forrit sem henta síbreytilegum þörfum og smekk hvers viðskiptavinar. Raddstýring sem nýtir gervigreind.

IONIQ 3 hefur verið þróaður til að mæta þörfum daglegra ökumanna, ungra fjölskyldna og framsýnna viðskiptavina sem meta virkni jafn mikið og stíl. Hann byggir á Electric-Global Modular Platform (E-GMP) Hyundai Motor Group með 400 volta rafkerfi og býður upp á jafnvægi á milli skilvirkni, drægni og hleðslugetu, sniðið að daglegum þægindum og notagildi. Tveir valmöguleikar eru í boði fyrir rafhlöðu, með áætlaðri WLTP-drægni upp á meira en 343 km (Standard Range) og yfir 496 km (Long Range), sem gerir viðskiptavinum kleift að velja útfærslu sem hentar þeirra lífsstíl best.

Þrátt fyrir nett ytri mál býður IONIQ 3 upp á rúmgott og sveigjanlegt innanrými sem hannað er með þægindi farþega í huga, samkvæmt “Furnished Space” hugmyndinni þar sem þáttum er raðað eins og húsgögnum til að skapa hlýlegt og einfalt rými. Langt hjólhaf og flatt gólf skapa rúmgott fóta- og höfuðrými, en stórt farangursrými eykur hagnýtt notagildi í daglegum akstri.

IONIQ fjölskylda rafbíla er hér til að knýja heim þinn. Hyundai IONIQ vörumerkið helgar sig algjörlega rafbílum og rafknúnum samgöngum á næsta stigi. Kynntu þér verðlaunaða úrvalið okkar: frá glænýjum IONIQ 3 og 7 sæta IONIQ 9 til nýja IONIQ 5 með aukinni drægni og tækninýjungum.

Hyundai IONIQ 3 er 4.155 mm að lengd (4.170 mm fyrir N Line), 1.800 mm að breidd, 1.505 mm að hæð og hjólhafið er 2.680 mm, sem gefur honum nettar en rúmgóðar útlínur.

¹ Opinberar tæknilegar upplýsingar og drægni þessa bíls bíða endanlegrar gerðarviðurkenningar. Orkunotkun og tæknigögn geta verið mismunandi eftir útfærslum.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.