Búnaður

Ný viðmið.

Nýr TUCSON Plug-in Hybrid setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla með glæsilegu úrvali af fyrsta flokks snjalltækni. Njóttu nýjustu tengimöguleikanna, besta öryggisbúnaðarins í flokki sambærilegra bíla ásamt framúrskarandi akstursaðstoðarkerfa.

Afköst

Spennandi akstur, lítill útblástur, engar málamiðlanir.

Plug-in Hybrid-kerfið í TUCSON skilar hámarkssparneytni og gerir aksturinn einstaklega ánægjulegan. Það byggist á öflugri samsetningu 1,6 l T-GDi Smartstream-vélar og 66,9 kW rafmótors sem er knúinn af 13,8 kWh LiPo-rafhlöðu. Saman skila bensínvélin og rafmótorinn 265 ha. hámarksafli og 304 Nm hámarkstogi.

Rafmótor.

Öflugur 66,9 kW rafmótorinn skilar 304 Nm togi sem gerir hröðun og afkastagetu Plug-in Hybrid einstakar.

Rafhlaða.

13,8 kWh LiPo-rafhlaðan geymir raforku sem endurheimtarkerfi fyrir hemlaorku myndar. Raforkan er því næst notuð til að knýja rafmótorinn.

Bensínvél.

1,6 lítra T-GDi vélin er búin hinni einstöku CVVD-tækni frá Hyundai (Continuously Variable Valve Duration) sem hámarkar afkastagetu og sparneytni vélarinnar.

Gírskiptirofar.

Viltu vera við stjórnvölinn? Þú getur skipt um gír með gírskiptirofunum í sportstillingu.

Orkuflæði.

Nýr TUCSON Plug-in Hybrid skiptir hnökralaust á milli bensínvélar og rafmótors, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Endurheimtarkerfi hemlaorku hleður rafhlöðuna með því að nota rafmótorinn til að hægja á bílnum. Orkan sem er geymd í rafhlöðunni er svo notuð til að knýja rafmótorinn sem hjálpar til við að knýja bílinn við hröðun, þegar ekið er upp brekku eða við hægan akstur. Eftirfarandi teiknimyndir sýna þetta flókna orkuflæði.

Slide1
Gangsetning / lítill hraði.

Þegar Tucson Hybrid er gangsettur eða honum er ekið hægt knýr raforkan sem er geymd í rafhlöðunni rafmótorinn og þar með bílinn áfram.

previous arrow
next arrow

Meiri afköst. Minni útblástur. CVVD-vélartækni.

Hyundai hefur þróað fyrstu CVVD-tæknina (Continuously Variable Valve Duration). Tæknin hámarkar afköst vélarinnar og sparneytni um leið og hún er vistvæn. Ventlastjórnunartæknin stjórnar tímastillingu opnunar og lokunar eftir akstursskilyrðum.

Slide
HTRAC™-aldrifskerfi.

Vont veður? Krappar beygjur? Ekkert mál. HTRAC™-aldrifskerfið býður upp á hámarksstjórn og afköst í beygjum.

previous arrow
next arrow

Hleðsla

Margar hentugar hleðsluleiðir.

Þökk sé nýstárlegri aflrásartækni Hyundai getur verið bæði fljótlegt og þægilegt að hlaða bílinn. Þú getur hlaðið á almennri hleðslustöð, í heimahleðslustöð eða heimilisinnstungu. Þegar þú stingur í samband heima geturðu tímasett hleðslu með snjallsímanum og í Bluelink®-forritinu utan álagstíma til að tryggja lægra verð.

Þú hefur ýmsa möguleika til að hlaða bílinn, allt eftir því hvernig rafveita er heima hjá þér eða hvernig hleðslustöð þú hefur aðgang að. Dæmi um hleðslumöguleika eru heimahleðslustöð eða hleðslustöð með riðstraumi.

Hægt er að tengja bílinn við venjulega heimilisinnstungu með ICCB-snúru. 7,2 kW hleðslutækið umbreytir riðstraumi úr vegginnstungunni í jafnstraum sem hleður rafhlöðuna.

Hægt er að fá hleðslusnúru til að hlaða TUCSON Plug-in Hybrid á hleðslustöðvum með riðstraumi. Einnig má nota snúruna til að tengja við heimahleðslustöð.

Slide1
Hleðslutímastýring.

Háþróað rafhlöðustjórnkerfi í Hyundai TUCSON Plug-in Hybrid veitir þér fullkomna stjórn á því hvenær og hvernig þú hleður bílinn. Veldu tíma sem hentar þínum tíma og fjárhag best og fáðu nákvæmar upplýsingar um hleðslutíma.

previous arrow
next arrow

Finndu hleðslustöð og bílastæði!

TUCSON Plug-in Hybrid býður upp á allt sem þú þarft til að njóta rafknúinna samgangna eins og þær gerast bestar. Ókeypis LIVE Services-áskriftin veitir þér aðgang að rauntímaupplýsingum um hleðslustöðvar, bílastæði og Hyundai-umboð. Auk þess færðu rauntímaupplýsingar um umferð, viðvaranir um hraðamyndavélar*, netleit fyrir áhugaverða staði og veðurskilyrði.

Slide
Leit að hleðslustöð.

Þú þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að verða rafmagnslaus: Fáðu rauntímaupplýsingar um hleðslustöðvar, t.d. um staðsetningar, tegundir tenginga og tiltækileika.

previous arrow
next arrow

Tengimöguleikar

Háþróaðir tengimöguleikar.

Að sjálfsögðu er TUCSON Plug-in Hybrid búinn nýjasta tengibúnaðinum á borð við Bluelink® Connected Car Services sem gerir þér kleift að stjórna bílnum með snjallsímanum – eða raddskipunum. Ókeypis fimm ára áskrift að Hyundai LIVE Services fylgir með leiðsögukerfi fyrir stóran 10,25" skjá.

10,25" snertiskjár og snertistjórnun.

Nýr 10,25" snertiskjárinn fellur fullkomlega að snertistjórnborðinu. Öllu er stjórnað með snertingu, hvort sem er leiðsögn, upplýsinga- og afþreyingarkerfi eða loftkælingu.

Tucson phev mælaborð

10,25" stafrænn mælaskjár.

Stafræni mælaskjárinn gefur ökumannsrýminu hátæknilegt yfirbragð. Búið er að fjarlægja umgjörð mælaskjásins til að undirstrika opið yfirbragð innanrýmisins.

Háþróuð raddstýring.

Kveiktu á og stjórnaðu eiginleikum á borð við hitastillingar, upplýsinga- og afþreyingarkerfi, opnun afturhlera og stýrishita með raddskipunum.

Slide
Hröð þráðlaus hleðsla.

Nýttu þér þráðlausa hraðhleðslu fyrir snjallsímann. Afl hleðslubúnaðarins hefur verið aukið úr 5 W í 15 W til að skila hraðhleðslu. Auk þess er einingin búin innbyggðum kælibúnaði til að koma í veg fyrir að snjalltækið ofhitni.

previous arrow
next arrow

Þægindi

Bíll sem er bæði þægilegur og handhægur.

Nýr TUCSON Plug-in Hybrid er bæði þægilegur og hentugur, fjölhæfur og vel tengdur. Hugvitsamlegur búnaður á borð við fjarstýrð fellisæti auðvelda þér að pakka í farangursrýmið fljótt og vel. Hugvitsamlegur inngöngubúnaður býður upp á einfalda stjórnun farþegaframsætisins. Upphituð fram- og aftursæti og fjölvirk loft- og hitastýring með frávísandi loftunaropum bjóða upp á þægilegra andrúmsloft í innanrýminu.

Rafknúinn afturhleri.

Nú er auðvelt að pakka í bílinn. Afturhlerinn opnast sjálfkrafa þegar snjalllykillinn greinist nærri í þrjár sekúndur. Þetta er sérlega hentugt þegar þú ert með báðar hendur fullar eftir verslunarferðir. Þú getur meira að segja stillt hversu hátt hlerinn lyftist.

Inngöngubúnaður.

Þessi sniðugi búnaður gerir ökumanni kleift að renna og halla farþegaframsætinu með hnappi á sætinu til að auðvelda aðgengi og auka þægindin.

Sveigjanleg niðurfelling aftursæta.

Aukin þægindi og sveigjanleiki bjóðast með 40:20:40 skiptingu aftursætanna. Enn fremur er boðið upp á fjarstýrða niðurfellingu sæta með handföngum á hliðum farangursgeymslunnar.

Snjöll staðsetning rafhlöðu.

Vegna þess að rafhlöðunni er haganlega komið fyrir í undirvagni bílsins er TUCSON Plug-in Hybrid rúmgóður og með gott fótarými. Farþegar í aftursæti fá 955 mm fótarými.

Upplifðu enn betri hita- og loftstýringu.

Það er staðreynd. Við höfum ólíkar þarfir. Sumir vilja meiri hita, aðrir minni. Þess vegna er nýr TUCSON búinn fjölvirkri loft- og hitastýringu. Hún dreifir loftinu með að- og frávísandi loftunaropum svo blásturinn verður mildari en heildarrúmtak loftsins helst það sama. Þriggja svæða hita- og loftstýring gerir þér svo kleift að skipta bílnum upp í ólík hitasvæði fyrir ökumann og farþega í framsæti og aftursætum.

Slide
Fjölvirk loft- og hitastýring.

Hámarkaðu þægindi allra. Nýr TUCSON er búinn innfelldri fjölvirkri loft- og hitastýringu, þeirri fyrstu sinnar tegundar í bíl frá Hyundai, sem samanstendur af að- og frávísandi loftunaropum fyrir loftkælingu og miðstöð sem stuðla að betra andrúmslofti í innanrými með hægara loftflæði.

previous arrow
next arrow

Öryggi

Besti öryggis- og akstursaðstoðarpakki í flokki sambærilegra bíla.

Vertu enn öruggari í nýjum Hyundai TUCSON Plug-in Hybrid með hugvitsamlegum eiginleikum og háþróuðum akstursaðstoðarkerfum sem eru þau bestu sinnar tegundar í flokki sambærilegra bíla. Bíllinn er búinn háþróuðu sjö loftpúða kerfi með hliðarloftpúða á milli framsæta sem er einstakt í flokki sambærilegra bíla. Það kemur í veg fyrir að farþegar í framsætum rekist saman og lágmarkar hættuna á alvarlegum meiðslum.

Slide1
FCA-árekstraröryggiskerfi með gatnamótabúnaði (FCA JT).

FCA-árekstraröryggiskerfið hemlar sjálfkrafa þegar það greinir skyndilega hemlun hjá bílnum fyrir framan eða gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Nú er búið að bæta við kerfið gatnamótabeygjubúnaði sem er sérstaklega hannaður til að koma í veg fyrir framanákeyrslu þegar beygt er til vinstri á gatnamótum (í löndum þar sem vinstri umferð er).

previous arrow
next arrow

Þjóðvegaakstursaðstoð.

Nýr TUCSON Plug-in Hybrid er nú í fyrsta sinn búinn þjóðvegaakstursaðstoð. Þessi búnaður er samsettur úr akreinaaðstoð og snjallhraðastilli sem er tengdur við leiðsögn. Búnaðurinn notar skynjara og kortagögn til að tryggja öruggan akstur og sjálfvirka stillingu hraða í samræmi við beygjur á leiðinni eða þar sem hraðatakmarkanir gilda. Sérstakur hnappur á stýri gerir ökumanni kleift að kveikja á þjóðvegaakstursaðstoðinni.

Slide
Snjallhraðastillir með tengingu við leiðsögn.

Meira öryggi, minna stress. Búnaðurinn er hluti af þjóðvegaakstursaðstoðinni og heldur tiltekinni fjarlægð frá ökutækinu fyrir framan, auk þess að stjórna hraðanum þegar beygt er.

previous arrow
next arrow

Fjarstýrð snjallbílastæðaaðstoð.

Með einum takka er hægt að láta nýjan TUCSON Plug-in Hybrid bakka sjálfan inn í og keyra út úr bílastæði.

Aukið öryggi með sjö loftpúðum.

Bíllinn er búinn háþróuðu sjö loftpúða kerfi með hliðarloftpúða á milli framsæta sem er einstakt í flokki sambærilegra bíla.

Sérstök áhersla á öryggi barna.

Nýr TUCSON er búinn hágæða snjalltækni til að tryggja að þú og fjölskylda þín séuð örugg og getið notið hverrar bílferðar til fulls. Við höfum bætt við nokkrum eiginleikum sem leggja sérstaka áherslu á öryggi barnanna.

Öryggisviðvörun við útgöngu.

Þessi sniðugi búnaður getur komið í veg fyrir slys með því að nema ökutæki sem nálgast aftan frá og birta viðvörun á mælaskjánum og hliðarspeglunum auk þess að gefa frá sér hljóðviðvörun.

Viðvörun um farþega í aftursæti.

Úthljóðsnemar greina hreyfingar farþega og geta sent ökumanninum tilkynningu ef börn eða gæludýr gleymast óvart í bílnum.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.