Nýr i20 er kröftugur og afgerandi smábíll sem setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla. Auk þess að vera smekkfullur af snjalltækni, svo sem fyrsta flokks öryggiskerfi og tengimöguleikum, er hann einnig fyrsti bíllinn í Evrópu sem skartar nýrri hönnunarstefnu okkar. Njóttu.
Þessi ítarlegi öryggispakki er hannaður til að auka öryggið á götunum fyrir alla: Þig, farþega þína og aðra vegfarendur – þar á meðal gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk.
Njóttu þæginda við aksturinn á i20 með snjöllum tengimöguleikum: Notaðu þráðlausa tengingu og stjórnaðu bílnum með röddinni á meðan þú ert á ferðinni.
Stíll nýrrar kynslóðar.
Fyrstu kynni eru mikilvæg. Þess vegna höfum við uppfært eina af okkar farsælustu gerðum með alveg nýrri og eftirtektarverðri hönnun. Nýr i20 er fyrsti bíllinn í Evrópu sem sækir innblástur í hönnunarstefnu Hyundai sem einkennist af sportlegri fágun. Útkoman? Bíll með útlit sem er í takti við aksturseiginleikana, með nútímalegt og kraftmikið yfirbragð sem sker sig úr á veginum.
Tengstu nýjum i20.
Nýttu kraft símans að fullu á meðan þú einbeitir þér að veginum – engin þörf á snúrum.
Eins og allir bílar frá Hyundai er i20 smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.
Allar nýskráðar Hyundai i20-gerðir með bensínvélar í Evrópu uppfylla Euro 6d-losunarstaðla.
Næsta kynslóð. Núna.
Með byltingarkenndri hönnun og fyrsta flokks öryggiskerfi. Með háþróuðum tengimöguleikum ertu alltaf í sambandi - líka á ferðinni. Nýjar aflrásir og skiptingarmöguleikar ryðja veginn fyrir fágaðri og sjálfbærri akstursupplifun. i20 setur viðmið í flokki sambærilegra bíla með framúrskarandi tæknibúnaði og sportlegum hönnunareinkennum.