Hönnun

Sportlegt útlit endurskilgreint.

Kröftugar, afgerandi og sportlegar línur: Byltingarkennd hönnun Hyundai i20 færir viðmiðin í flokki sambærilegra bíla. Kraftmikið útlitið í bland við fjölda nýrra aukahluta fyrir innanrýmið gerir þér auðvelt að sníða bílinn að þínum smekk.

Ytra byrði

Fangaðu athyglina með stíl.

Nýr i20 er rennilegur og framúrskarandi bíll sem kemur með látum inn í flokk sambærilegra bíla með sportlegri nýrri hönnun. Hann er breiðari, lengri og með lægra þak en forverinn og fyrsti bíllinn í Evrópu sem sækir innblástur í hönnunarstefnu Hyundai sem einkennist af sportlegum smáatriðum – fullkominn samhljómur kraftmikilla hlutfalla, stíls og tækni.

your 360 images

Glæsileg ljósahönnun.

Samfelld LED-aðalljósin eru enn meira áberandi með skörpum dagljósunum sem tengjast afturhlutanum sjónrænt og skapa þannig einstakt útlit.

Sportlegur á allar hliðar.

Afgerandi framstuðarinn er rammaður inn með áberandi loftinntökum og nýju grilli með möskvahönnun sem sker sig úr frá fyrstu sýn.

Einstök ljós.

Flæðandi z-laga LED-ljósasamstæðan teygir sig yfir afturhlerann og tengir þannig saman afturljósin til að skapa einstakt útlit.

Þinn bíll. Þínir litir.

Sníddu nýjan i20 eftir þínu höfði: Í stíl við einstakar útlínur bílsins er hægt að velja um tíu töfrandi liti á ytra byrði. Tveggja tóna svart þakið setur svo punktinn yfir i-ið og ljáir i20 stílhreint og afgerandi útlit sem er einstakt – rétt eins og þú.

Previous slide
Next slide

Tveggja tóna þak.

Sníddu útlitið eftir þínu höfði með svörtu þaki og vali um tveggja tóna lit á ytra byrði. Hannaðu bíl sem fellur fullkomlega að þínum smekk.

Slide
17" álfelgur.

Ferðastu með stíl á nýjum sérhönnuðum 17" álfelgum sem undirstrika áhrifamikla stöðu bílsins á vegum úti.

Slide2
Einstök hönnun á C-stoðum.

Djörf hönnun nýs i20 er undirstrikuð í einkennandi C-stoðum bílsins.

Slide3
Ný dagljós.

Sportlegur og öruggur: Dagljósin eru fallega hönnuð og auka einnig sýnileika nýs i20 fyrir aðra ökumenn.

Slide4
Endurhannaður afturstuðari.

Nýtt útlit afturstuðarans undirstrikar endurhannað og kraftmikið útlit i20 sem er sportlegt frá öllum hliðum séð.

previous arrow
next arrow

Innanrými

Hátæknilegt hágæða innanrými.

Hönnuðir Hyundai hafa skapað nýtt og ferskt útlit og beitt fjölmörgum nýstárlegum fagurfræðilegum og tæknilegum lausnum til að ná fram rúmgóðu andrúmslofti og nútímalegri stemningu. Hurðirnar ramma mælaborðið glæsilega inn og skapa fallega áferð með innblæstri frá formum sem finna má í náttúrunni. Lögun hurðanna passar fullkomlega við mælaborðið og LED-stemningslýsingin gefur látlaust en fágað blátt yfirbragð í ökumannsrýminu.

Slide
Bjartur 10,25" stafrænn mælaskjár.

Nýi 10,25" stafræni mælaskjárinn gerir ökumannsrýmið enn hátæknilegra og birtir mikilvægar akstursupplýsingar sem ökumaður á auðvelt með að sjá. Þú getur breytt skjánum eftir þínum þörfum: Hægt er að sýna hraðann á stafrænan hátt og sýna orkuflæði (aðeins 48 V) eða SmartSense-eiginleika.

Slide2
Þrír akstursstillingarlitir.

Breyttu stillingunni eftir stemningu hverju sinni. Stafræni mælaskjárinn skiptir um liti og myndefni eftir valinni akstursstillingu. Blár eins og á myndinni er fyrir Normal, grænn fyrir Eco og appelsínugulur fyrir sportstillingu.

previous arrow
next arrow

Glæsilegt mælaborð.

Rennileg blöðin gefa mælaborðinu óvenju stílhreint útlit og undirstrika mjúka og breiða hönnun framhlutans.

Sportlegt stýri með fjórum örmum.

Góð tenging og stjórn með sportlegum stjórnhnöppum í stýri.

10,25" AVN-skjár.

10,25 tommu snertiskjárinn veitir greiðan aðgang að eiginleikum bílsins, upplýsinga- og afþreyingarkerfinu, leiðsögukerfinu og snjallsímaforritum.

Previous slide
Next slide

Sönn fegurð kemur innan frá.

Innanrými nýs i20 hefur verið endurhannað frá toppi til táar og smellpassar við ytra byrðið sem vekur hvarvetna athygli. Fjölbreytt úrval aukabúnaðar og aukahluta gerir þér síðan kleift að sníða bílinn þinn eftir þínu höfði.

Tímalaus klassík: látlaus en stílhrein – sniðin að þeim sem kjósa látlaust innanrými.

Svarta og gráa áklæðið er með áherslusaumi sem endurspeglar sportlegt yfirbragð ytra byrðis bílsins.

Áherslusaumurinn í límónugræna áklæðinu er líflegur en jafnframt látlaus og ber sportlegu yfirbragði i20 vitni.

LED-stemningslýsing.

Akstur að næturlagi er alltaf sérstök upplifun. Látlaus og fínstillt LED-stemninglýsingin umvefur innanrýmið og veitir notalega birtu við aksturinn.

Hönnuð með þægindi í huga.

Sportlegt útlit og þægindi sameinast í nýjum i20: Gæðaáklæði veitir hámarksþægindi í hverri ferð.

Næsta kynslóð. Núna.

Byltingarkennd hönnun og fyrsta flokks öryggiskerfi. Með háþróuðum tengimöguleikum ertu alltaf í sambandi – líka á ferðinni. Nýjar aflrásir og gírskiptingar ryðja veginn fyrir fágaðri og sjálfbærri akstursupplifun. Nýr i20 setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.