Hönnun

Bylting frekar en þróun.

Fáguð og framsækin hönnun nýs TUCSON-tengiltvinnbíls er byltingarkennd. Hér ræður nútímaleg fegurð ferðinni með einstökum meitluðum flötum og rennilegum línum.

Ytra byrði

Sportleg fágun í fyrirrúmi.

Nýr TUCSON er fyrsti bíll Hyundai sem er þróaður eftir hugmyndafræðinni um sportlega fágun, með stærri og breiðari yfirbyggingu. Kröftug staðan sameinar skörp horn og rennileg hlutföll með áberandi flötum. Niðurstaðan er framsækið útlit sem kemur kröftugri arfleifð TUCSON fullkomlega til skila.

your 360 images

Fyrstu innfelldu duldu ljós sinnar tegundar.

Dökkkrómað grillið lýsist upp þegar ekið er af stað. Með fyrsta flokks hálfspeglaðri lýsingartækni eru innfelldu duldu ljósin falin þegar slökkt er á þeim en þegar kveikt er á þeim lyftast ytri hlutar grillsins upp eins og vængir og skapa einkennandi lýsingu með hátæknilegu yfirbragði. Þegar bíllinn er stöðvaður eru ljósin aftur dulin innan grillsins.

Lagaðu nýjan TUCSON að þínum stíl.

Nú eru þrír nýir og glæsilegir litir í boði: Sindrandi silfurlitaður, Amazon-grár og blágrænn sem þýðir að nú er hægt að velja úr níu litum á ytra byrði. Þar að auki er hægt að velja tvítóna þak, annað hvort svart eða dökkgrátt. Þannig geturðu sérsniðið nýjan TUCSON enn frekar að þínum stíl.

Previous slide
Next slide

Álfelgur.

Kraftmiklar 19" álfelgur undirstrika sportlegt útlitið.

Rennilegt glermerki.

Fíngert Hyundai-glermerkið er krúnudjásn nútímalegrar hönnunar sem einkennir afturhluta bílsins. Það virðist þrívítt en í raun stendur það ekki upp úr yfirborðinu ólíkt hefðbundum bílamerkjum.

Dulin afturrúðuþurrka.

Nýr TUCSON-Plug-in Hybrid er fyrsti Hyundai-bíllinn sem búinn er duldum afturrúðuþurrkum sem hverfa undir vindkljúfinn þegar þær eru ekki í notkun.

Innanrými

Fegurðin í innra rýminu.

Innanrými nýs TUCSON-tengiltvinnbíls er fágað og rúmgott. Um leið og þú sest inn finnurðu fyrir því hversu opi[ rýmið er. Hér sameinast rými, tækni og upplýsingar í fullkomnum samhljómi. Ávöl form og mjúk gæðaefni innanrýmisins gefa því einstakt útlit og yfirbragð.

Þakgluggi.

Ylurinn frá sólinni og ferskur vindur leika um þig þegar þú opnar þakglugga TUCSON-tengiltvinnbíls.

Litasamsetningar í innanrými.

Veldu úr þremur innréttingum: obsidian svörtum, mosagráum eða blágrænum. Tveir silfraðir skrautlistar liggja frá miðju mælaborðinu að afturhurðunum, óháð þeim lit sem er valinn, og tóna fullkomlega við snyrtilega hannaða yfirborðsfletina sem eru í hlutlausum litum.

Obsidian-svartur.

Sígildur svartur og hægt er að velja á milli sæta með ofnu áklæði og sæta með leðuráklæði.

Mosagrár.

Með mosagráa litnum er einnig hægt að velja á milli sæta með ofnu áklæði og sæta með leðuráklæði.

Blágrænn.

Veldu svört sæti með annaðhvort ofnu áklæði eða leðri með blágrænum saumum á sætum, armpúðum og gírstöng. Blágrænar efnisinnfellingar eru einnig á árekstrarpúðanum og hurðarklæðningunni.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.