Með stóru 65,4 kWh rafhlöðunni, framhjóladrifi og 17″ felgum skilar Hyundai KONA eftirfarandi hleðslutímum:
101 kW DC hraðhleðslustöð: 10 upp í 80% á 41 mínútu.
Drægni sem fæst við 15 mínútna hleðslu: 162 km.
Nýr Kona hefur verið endurnýjaður og endurskilgreindur. Verðlaunuð hönnun forverans hefur verið uppfærð með nýjum hönnunaráherslum, framúrskarandi tengimöguleikum og öryggisbúnaði.
Þú sérð fegurðina frá öllum hliðum á nýjum og endurbættum Hyundai KONA EV. Áberandi hönnun og flæðandi línur einkenna framúrstefnulegan stíl Kona EV. Þessi nýja útgáfa af Kona EV sameinar fallegt útlit og stórkostlega sparneytni sem þakka má rafmagns-aflrásinni. Þessi glæsilegi fólksbíll hefur verið uppfærður með nýjum og rennilegum hönnunaráherslum sem og nýjustu snjalltækni á borð við framúrskarandi akstursaðstoðarkerfi og tengibúnað ásamt 30% stærra farangursrými en áður. Hann kemur þér lengra og á 100% rafmagni.
Stílhreinn og einkennandi framhlutinn er auðkenndur af "Seamless Horizon Lamp" sem teygir sig þvert yfir bílinn
Til að veita hámarks þægindi hefur hinn nýi KONA EV þróast og stækkað, með rausnarlegu fóta- og axlarými fyrir aftursætisfarþega.
Hinn nýi KONA EV er hannaður til að henta þínu annasama lífi og býður upp á nóg pláss fyrir farþega og farangur. Þessi djarfi, vandaði jepplingur gefur þér nú stærra rými fyrir öll þín ævintýri.
Til að veita hámarks farþegarými hefur hinn nýi KONA þróast og stækkað, með rausnarlegu fóta- og axlarými fyrir aftursætisfarþega.
Þegar kemur að farangri og geymslu þá býður hinn nýi KONA EV upp á 466 lítra farangursrými (VDA) – 30% meira en fyrri KONA. Það er líka einfalt að stilla: þú getur fellt aftursætin niður á nokkrum sekúndum án þess að þurfa að taka höfuðpúðana af. Með sætin niðurfelld er rúmgott 1300 lítra pláss fyrir ferðalag helgarinnar.
Þú munt elska sveigjanleika 40:20:40 niðurfellanlegu aftursætanna. Leggðu niður miðhlutann og þú getur komið fyrir fjórum pörum af skíðum og fjórum farþegum.
Njóttu sveigjanleikans með 466 lítra farangursrými með sætin uppi, 30% meira en fyrri KONA.
Glæsilegur panoramic skjárinn er bogadreginn og tvískiptur fyrir hátæknilegt útlit: 12,3" upplýsinga- og afþreyingarsnertiskjár og 12,3" stafrænt mælaborð.
Átta hátalara BOSE Premium hljóðkerfi auk bassahátalara hefur verið stillt af BOSE verkfræðingum til að skila ríkulegri og yfirgripsmikilli hljóðupplifun.
Hyundai KONA setur ný viðmið í flokki smájeppa með háþróaðri snjalltækni. Nýttu þér nýjustu snjall tengimöguleika og þæginda sem studdir eru með háþróuðum öryggiskerfum. KONA er einnig fyrsta Hyundai bifreiðin sem býr yfir nýju leiðsögustýrikerfi með svokölluðum "Over The Air" (OTA) uppfærslum. Í þessari nýju útgáfu af Hyundai KONA er mögulegt að nota snjalltækið þitt í stað bíllykils.
Kynntu þér "Smart Sense", háþróað ökumannsaðstoðarkerfi Hyundai og öryggiseiginleika þess.
Kynntu þér tæknilega tengikerfið í hinum nýja KONA EV.
Með því að nota Apple CarPlay™ og Android Auto™ geturðu speglað snjallforitin og tónlistina á símanum þínum yfir á stóra margmiðlunarskjáinn.
Með stóru 65,4 kWh rafhlöðunni, framhjóladrifi og 17″ felgum skilar Hyundai KONA eftirfarandi hleðslutímum:
101 kW DC hraðhleðslustöð: 10 upp í 80% á 41 mínútu.
Drægni sem fæst við 15 mínútna hleðslu: 162 km.
Með 48,4 kWh rafhlöðunni, framhjóladrifi og 17″ felgum skilar Hyundai KONA eftirfarandi hleðslutímum:
74 kW DC hraðhleðslustöð: 10 upp í 80% á 41 mínútu.
Drægni sem fæst við 15 mínútna hleðslu: 114 km.
KONA Electric er búinn 10,5 kW hleðslutæki (OBC.) Í 11 kW heimilishleðslu eða á almennri AC hleðslustöð (EU 3-fasa 230V) er hleðslutíminn: 6 klukkustundir og 25 mínútur.
KONA Electric er búinn 10,5 kW hleðslutæki (OBC.) Í 11 kW heimilishleðslu eða á almennri AC hleðslustöð (EU 3-fasa 230V) er hleðslutíminn: 4 klukkustundir 55 mínútur.
Eins og allir aðrir Hyundai-bílar er nýr Kona EV smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð1 til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Auk þess er afkastamikil LiPo-rafhlaðan með átta ára eða 160.000 km ábyrgð, hvort sem kemur fyrr. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.
1 Ábyrgðir Hyundai eiga aðeins við um bíla frá Hyundai sem voru upprunalega seldir af viðurkenndum umboðsaðila Hyundai til endanlegs kaupanda eins og fram kemur í skilmálum okkar í ábyrgðarskírteininu. Átta ára eða 160.000 km ábyrgð á rafhlöðum. Staðbundnir skilmálar gilda. Frekari upplýsingar fást hjá opinberum söluaðila Hyundai.
Hyundai á Íslandi Kauptúni 1 210 Garðabæ 575 1200 [email protected]
Neyðarþjónusta Króks utan opnunartíma:
822 8010
Höfundarréttur © 2024 Hyundai á Íslandi. Allur réttur áskilinn.