Nýr INSTER.

Ertu klár í slaginn?

Inster bíll ársins 2025

Nýr INSTER.

Ertu klár í slaginn?

Við byrjum nýjan kafla – af fullum krafti.

Kynntu þér INSTER – þéttan rafbíl sem vekur athygli og endurskilgreinir væntingar í sínum flokki. Með áherslu á rúmgóða hönnun og eftirtektarvert, áhrifamikið útlit er hann smíðaður sem hið fullkomna rými fyrir þig. Uppgötvaðu allt sem INSTER hefur upp á að bjóða.
Ertu klár í slaginn?

Inster Hröðun

Viðbragðsmikil hröðun.

Upplifðu spennandi rafdrifna hröðun INSTER – hann fer úr 0 í 100 km/klst á aðeins 10,6 sekúndum.²

Inster drægni

Akstursdrægni allt að 370 km.

Með allt að 370 km drægni á einni hleðslu – þegar hann er búinn 15" álfelgum – er INSTER skýrt merki um framtíð snjallari ferðamáta.³

Hámarkshraði allt að 150 km.

INSTER nær hámarkshraða upp á allt að 150 km/klst.²

Hámarksrými – engar málamiðlanir.

INSTER hönnun

Fullkominn fyrir þröngar götur og stór augnablik.

INSTER er einstaklega lipur í akstri og hentar fullkomlega til að þræða þröngar götur og leggja í þröng stæði.

Rúmgæði í forgangi.

Með flötu gólfi rafbíls, einstaklega sveigjanlegum sætum sem leggjast alveg niður og háu jeppalaga yfirbyggingarlínunni, býður INSTER upp á ótrúlegt innanrými – sérstaklega fyrir borgarbíl.

INSTER hönnun

Við leggjum allt í hleðsluna.

INSTER hleðslumöguleikar

Hleðsla fyrir fartölvuna eða rafhlaupahjólið.

Hleðsla fyrir öll þín tæki og tól með "Vehicle-to-Load" tækninni. Hvort sem er utan frá með breytibúnaði eða innan frá með venjulegri innstungu færðu allt að 3,6 kW afl.

Njóttu sveigjanleikans.

Sætin leggjast alveg niður, sem gerir bílinn hentugan bæði fyrir stutta hvíld og þegar flytja þarf fyrirferðarmikla hluti. Að auki er hægt að renna aftursætunum fram um 16 cm og stækka þannig farangursrýmið úr 238 í allt að 351 lítra.

Njóttu sveigjanleikans.

Sætin leggjast alveg niður, sem gerir bílinn hentugan bæði fyrir stutta hvíld og þegar flytja þarf fyrirferðarmikla hluti. Að auki er hægt að renna aftursætunum fram um 16 cm og stækka þannig farangursrýmið úr 238 í allt að 351 lítra.

Rafmögnuð afköst.

INSTER býður upp á háþróaða eiginleika og val um annaðhvort 42 kWh eða 49 kWh Long-Range rafhlöðu.

Inster specifications

Rafhlaða

Standard 42 kWh

Long 49 kWh

Afl

Standard 71 kW (97 hö)

Long 85 kW (115 hö)

Drægni

Standard allt að 327 km³

Long range
: allt að 370 km á 15" felgum³

Long range
: allt að 359 km á 17" felgum³

Hröðun

0-100 km/klst 10,6 sek (49 kWh)

0-100 km/klst 11,7 sek (42 kWh)

Hámarkshraði

Standard allt að 140 km/klst³

Long range allt að 150 km/klst³

Allt lagt undir fyrir snjallan ferðamáta.

Fyrir utan drægnina og framúrskarandi hleðslutækni býður INSTER upp á eina fullkomnustu tæknina í sínum flokki – með fjölbreyttum háþróuðum öryggis- og akstursaðstoðareiginleikum.¹

Inster tækni

Nýr INSTEROID er mættur

Truflun í bílaiðnaðinum.

Nýrri, djarfari, ólíkur öllu öðru – INSTEROID er kominn. Hann var afhjúpaður á Seoul Mobility Show og vakti strax mikla athygli í bílaheiminum. Smíðaður á verkstæði og troðfullur af nýstárlegum og skemmtilegum eiginleikum er INSTEROID algjör einstæður hugmyndabíll – sprottinn úr hönnunarhugmynd sem fékk að blómstra. Hann er Hyundai INSTER, endurhugsuð sem djörf, afkastamikil og hönnunardrifin sýn framtíðarinnar.

Kynntu þér INSTEROID – villta hlið INSTER.

Sem einstakur hugmyndabíll sýnir INSTEROID nýstárlega framtíðarsýn hönnunarteymis Hyundai. Hann er spennandi „glitch“ í bílaheiminum – þar sem ögrandi fagurfræði úr tölvuleikjaheimum sameinast raunverulegri verkfræði og mynda ökutæki sem virkar eins og það hafi stigið beint út af stafrænum hraðbrautum.

INSTEROID á verkstæði
INSTEROID að innan

INSTER á sterum.

Hvað ef allt væri leyfilegt? INSTEROID er afrakstur óheftrar sköpunar. Nafnið – sambland af INSTER og steroid – segir allt: þessi skemmtilegi hugmyndabíll er hannaður fyrir hreina ánægju, með það að markmiði að endurskilgreina hvernig rafdrifin kappakstursvél getur litið út – og virkað.

Tilbúin(n)? Af stað!

Sportlegur og innblásinn af tölvuleikjastíl – INSTEROID státar af breiðari yfirbyggingu, sérsniðnum kappakstursfelgum og búnaði sem hámarkar loftflæði: stór vindskeið að aftan, loftdreifari og loftstýriflipar við hjólaboga – allt hannað fyrir háþróaða loftaflfræði.

7 ára ábyrgð.

Eins og allir Hyundai-bílar er INSTER smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Auk þess er afkastamikil LiPo-rafhlaðan með átta ára eða 160.000 km ábyrgð, hvort sem kemur fyrr. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Inster hleðsla

Skráðu þig á póstlistann.

Við munum senda þér allar nýjustu INSTER fréttirnar!

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.