LED-dagljósin hafa nú verið innbyggð í sportlegt breitt framgrill með nýrri sexhyrndri hönnun.
Með kraftmikilli uppfærslu á þessum djarfa borgarbíl sannast hið fornkveðna að margur er knár þótt hann sé smár.
Nýr i10 lætur að sér kveða með sportlegu útliti, lágu þaki og löngu hjólhafi. Stílhrein og kraftmikil hönnunin skapar andstæður á milli mjúks yfirborðsins og skarpra lína. Vöðvar mannslíkamans undir sportlegum fatnaði urðu að innblæstri fyrir hönnunina og stílhrein, mjúk en kröftug yfirbyggingin er mótuð til að tryggja ríflegt innanrými.
Breitt, stallað grillið er með nýju sexstrendu mynstri sem leggur áherslu á sportlegt útlit nýs i10.
Bættu í sportlegt yfirbragðið með 15" eða 16" álfelgum með nýrri og nettari hönnun.
Þú hefur val um sjö liti á ytra byrði og tvílitt þak sem fæst í svörtu til að hanna þinn eigin bíl. Á meðal tveggja nýrra lita eru sumargrár og skýjablár.
LED-dagljósin hafa nú verið innbyggð í sportlegt breitt framgrill með nýrri sexhyrndri hönnun.
Öryggi og gott útlit er aukið með rafdrifnum samanbrjótanlegum speglum með innbyggðum LED ljósum
Á hlið i10 renna gluggalínurnar tignarlega afturábak inn í hina áberandi X-laga C-stólpa. Þessi einstaki eiginleiki auðkennir bílinn greinilega og dregur augað að i10 lógóinu.
Dökkar afturrúður gefa fágaðari stíl, aukið næði og á sama tíma halda hitastigi niðri inni í bílnum við sólríkar aðstæður.
Á hliðunum hefur straumlínulagaður meginhlutinn verið hannaður til að veita hámarks innra rými. Glæsileg mittislínan bætir enn kraftmeiri hreim við áberandi ytri byrðina.
Afturstuðarinn er með grafítlitaðri plötu auk þokuljóss í neðra vinstra horninu og bakljósið í hægra neðra horninu
Endurhönnuð LED ljós gefa i10 sérstakt nýtt útlit fyrir meiri dýnamík og betra skyggni
Innanrýmið með hárfínum mynstrum og ferskri áferð tekur á móti þér með stílhreinum og nútímalegum faðmi. Þrívítt og glæsilegt sexstrent mynstur ljáir klæðningunni á mælaborðinu og hurðunum sportlegt yfirbragð. Hringlaga loftunaropin teygja sig frá mælaborðinu og yfir hurðarklæðninguna, sem eykur á rýmistilfinninguna. Veldu á milli fjögurra ólíkra litasamsetninga til að hanna innanrýmið eftir þínum smekk.
Hlýjar hendur þegar kalt er í veðri. Stýrið er með hitaeiginleika og allar stýringar eru haganlega staðsettar til að tryggja að þú hafir tengimöguleikana ávallt við höndina.
Hlýtt og notalegt á veturna. Njóttu þægindanna sem upphituð sæti veita á köldum dögum. Sætin hitna með hraði.
Njóttu þægindanna sem fylgja þráðlausri snjallsímaspeglun á 8” snertiskjá með Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Stílhreina og framúrstefnulega stafræna 4,2" LCD mælaborðið veitir þér auðveldan aðgang að fjölbreyttu úrvali bílastillinga og ökumannsupplýsinga.
Þrívíddar sexhyrnt mynstur er á mælaborðinu og hurðaspjöldum fyrir sportlegt útlit. Hringlaga loftopin teygja mælaborðið sjónrænt inn í hurðarklæðninguna og býr til breiðari og rýmri tilfinningu.
Loftopið nær inn í hurðarklæðninguna fyrir rýmilegri tilfinningu. Kringlóttu loftopin að framan eru sett inn í mælaborðið fyrir hreint, nútímalegt útlit.
Breyttu næturferðunum þínum í notalega akstursupplifun – nýja LED umhverfislýsingin að framan skapar sérstaklega afslappað andrúmsloft.
Fjólubláa pakkanum fylgir köflótt efni á sæti með lóðréttum fjólubláum línum og saumi, auk þess sem það er ljósfjólublár saumur á stýrinu.
Fjólublái pakkinn lífgar upp á bílinn með ljósfjólubláum lit á loftopum og fjólubláum blæ á mælaborði og neðri hluta miðstokks.
Hyundai á Íslandi Kauptúni 1 210 Garðabæ 575 1200 [email protected]
Neyðarþjónusta Króks utan opnunartíma:
822 8010
Höfundarréttur © 2024 Hyundai á Íslandi. Allur réttur áskilinn.