Hönnun

Uppfærður að innan sem utan.

i30 hefur löngum státað af sígildu öryggi. Með uppfærðri hönnun að framan, aftan og að innan er öruggt að nýjasta kynslóð i30 uppfyllir allar hönnunaróskir kröfuharðra ökumanna.

Sagan

Frá fyrstu skissu til fullunninnar vöru.

Fyrsta stig ferlisins snýst um hönnunina. Á þessu stigi felst áskorunin í því að velja leiðandi strauma sem hrífa ekki aðeins í dag heldur um ókomna tíð. Hyundai fylgist vel með tískustraumum og neyslumynstri á hverjum stað víða um heim, í því skyni að skapa frumlegar myndir og hugmyndir.

„Nýr i30 hefur mjög alþjóðlega skírskotun, þökk sé úrvali ólíkra útfærslna á yfirbyggingum, aflrásum, öryggiskerfum og tengimöguleikum.“

- Richard Haleš markaðssérfræðingur -

Ytra byrði

Smart, stílhreinn og tilbúinn í hvað sem er.

Verðlaunahönnun ytra byrðis i30 hefur verið uppfærð með fjölda nýrra og stílhreinna hönnunarþátta. Framhlutinn er einkennandi fyrir nútímalegri stöðu i30. Afturhlutinn ber fágun i30 vitni. Og með þrjá nýja liti að utan hefur aldrei verið jafn auðvelt að hanna bílinn eftir eigin höfði.

Afgerandi stuðari og grill.

Breiðari og nútímalegri staða i30 undirstrikar kraftmikið útlit bílsins. Þrívíddarmynstrið á grillinu kallar fram ímynd áreiðanleika og snerpu.

Ný hönnun aðalljósanna vekur eftirtekt.

Ný og stílhrein ljósahönnunin er fáanleg með sambyggðum V-laga dagljósum og nettari aðalljósum með nýjustu LED-tækninni.

Öflug áherslulína.

Lögunin er stílhrein og einkennist af fágaðri áherslulínu sem liggur frá aðalljósum að afturljósasamstæðu.

Álfelgur með demantshönnun.

Endurhannaðar 16 eða 17 tommu álfelgur með demantshönnun eru valbúnaður í nýjum i30.

your 360 images

Þakgluggi.

Stór og breiður þakgluggi sem hægt er að halla og eykur á tilfinninguna um opið og rúmgott farþegarými.

Ný stuðarahönnun.

Neðri lína stuðarans skartar nýrri hönnun sem einkennist af tvöföldum krómuðum skábrúnum.

Afturljósasamstæða.

LED-afturljósasamstæðan kallast á við V-laga dagljósin að framan og myndar samhverfu ásamt því að tryggja hámarksyfirsýn og -öryggi.

Stíllinn þinn.

Með val um 9 liti á ytra byrði velur þú útlitið fyrir nýja i30-bílinn þinn.

Innanrými

Fágaður, þýður og þægilegur.

Ný og einstök hönnunin á Hyundai i30 nýtur sín einnig í innanrýminu. Falleg smáatriði og yfirborðsfletir úr hágæðaefnum bíða þín í endurbættu innanrýminu. Nýir litir, valkostir um sætishlífar og nýjasta margmiðlunartæknin gera aksturinn öruggan og þægilegan.

Stærri snertiskjár.

10,25 tommu snertiskjárinn veitir greiðan aðgang að eiginleikum bílsins, upplýsinga- og afþreyingarkerfinu, leiðsögukerfinu og snjallsímaforritum.

Fáguð loftunarop.

Uppfærð loftunarop auka á tilfinninguna um rými í fáguðu farþegarýminu.

Útdraganlegir armpúðar að framan.

Hægt er að færa armpúðann fram og til baka eftir þörfum. Þegar hlífinni sem er á hjörum er lyft upp kemur geymsluhólf í ljós.

Kynntu þér nýjan Hyundai i30 betur.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.