Hönnun.
Skoðaðu hönnun nýs Hyundai TUCSON-tengiltvinnbíls.
Bylting frekar en þróun.
Fáguð og framsækin hönnun nýs TUCSON-tengiltvinnbíls er byltingarkennd. Hér ræður nútímaleg fegurð ferðinni með einstökum meitluðum flötum og rennilegum línum.
Hönnun ytra byrðis
Sportleg fágun í fyrirrúmi.
Nýr TUCSON er fyrsti bíll Hyundai sem er þróaður eftir hugmyndafræðinni um sportlega fágun, með stærri og breiðari yfirbyggingu. Kröftug staðan sameinar skörp horn og rennileg hlutföll með áberandi flötum. Niðurstaðan er framsækið útlit sem kemur kraftalegri arfleifð TUCSON fullkomlega til skila.
360°
Fyrstu innfelldu duldu ljós sinnar tegundar.
Dökkkrómað grillið lýsist upp þegar ekið er af stað. Með fyrsta flokks hálfspeglaðri lýsingartækni eru innfelldu duldu ljósin falin þegar slökkt er á þeim en þegar kveikt er á þeim lyftast ytri hlutar grillsins upp eins og vængir og skapa einkennandi lýsingu með hátæknilegu yfirbragði. Þegar bíllinn er stöðvaður eru ljósin aftur dulin innan grillsins.
Lagaðu nýjan TUCSON að þínum stíl.
Nú eru þrír nýir og glæsilegir litir í boði: Sindrandi silfurlitaður, Amazon-grár og blágrænn, sem þýðir að nú er hægt að velja úr níu litum á ytra byrði. Þar að auki er hægt að velja tvítóna þak, annað hvort svart eða dökkgrátt. Þannig geturðu sérsniðið nýjan TUCSON enn frekar að þínum stíl.
Hönnun innanrýmis
Fegurðin í innra rýminu.
Innanrými nýs TUCSON-tengiltvinnbíls er fágað og rúmgott. Um leið og þú sest inn finnurðu fyrir hversu rýmið er opið. Hér sameinast rými, tækni og upplýsingar í fullkomnum samhljómi. Ávöl form og mjúk gæðaefni innanrýmisins gefa því einstakt útlit og yfirbragð.
Litasamsetningar í innanrými.
Veldu úr þremur innréttingum: einlitum svörtum, tvítóna svörtum og mosagráum eða blágrænum. Tveir silfraðir skrautlistar liggja frá miðju mælaborðinu að afturhurðunum, óháð þeim lit sem er valinn, og tóna fullkomlega við snyrtilega hannaða yfirborðsfletina sem eru í hlutlausum litum.