Búnaður.
Kynntu þér búnað i30.
Þægindi og sparneytni í fyrirrúmi.
Nýr i30 Hatchback setur ný viðmið í sínum flokki með nýjustu snjalltækninni, þar á meðal einstaklega skilvirkum aflrásum þar sem hægt er að velja 48 V hybrid-aflrás með samhliða kerfi, fyrsta flokks öryggi og akstursaðstoðarbúnaði og framúrskarandi tengimöguleikum.
Afköst
Sparneytni og framfarir: úrval aflrása.
Nýr i30 býður upp á ýmsa kosti í aflrásum sem eiga enga sína líka. Rafknúna 48 V hybrid-aflrásin með samhliða kerfi dregur úr losun koltvísýrings með því að draga úr eldsneytisnotkun. Snjöll beinskipting dregur enn frekar úr eldsneytisnotkun. Ef þú vilt frekar sjálfskiptingu er 48 V hybrid-aflrás með samhliða kerfi í boði með sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu.
-
1,5 DPi bensínvél.
Nýr i30 er með nýþróaðri 1,5 lítra vél með DPi (Dual Port injection) og 110 hö., og sex gíra beinskiptingu. Hámarksafl: 110 hö., hám. Tog: 144,2 Nm
- 1
-
1,0 T-GDi-bensínvél.
1,0 lítra T-GDi vélin skilar 120 hö. og er með sex gíra beinskiptingu eða sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu. Einnig er í boði 48 V hybrid-útgáfa með samhliða kerfi sem skilar betri eldsneytisnýtingu. Í fyrsta skipti er sex gíra iMT-beinskipting í boði. Hámarksafl: 120 hö., hám. Tog: 172 Nm
- 1
-
1,5 T-GDi 48 V bensínvél.
Efst í línunni er nýja 1,5 lítra T-GDi vélin með 160 hö., sem er staðalbúnaður með 48 V hybrid-bíl með samhliða kerfi. Hún er einnig fáanleg með sex gíra iMT-beinskiptingu eða sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu. Hámarksafl: 160 hö., hám. Tog: 253 Nm
- 1
-
1,6 CRDi-dísilvél.
Í dísilvélum er hægt að velja 1,6 lítra CRDi-vél með 115 eða 136 hö. 115 ha. vélin er með sex gíra beinskiptingu eða sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu. 136 ha. vélin er nú með 48 V hybrid-aflrás með samhliða kerfi. Hún er í boði með sex gíra iMT-beinskiptingu eða sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu. Hám. afl: 136 hö., hám. Tog: 320 Nm (með DCT-sjálfskiptingu)
- 1
Nýir gírkassamöguleikar fyrir þitt aksturslag.
i30 Hatchback er fáanlegur með sex gíra beinskiptingu, sjö þrepa DCT-sjálfskiptingu (7DCT) eða nýþróaðri sex gíra snjallri beinskiptingu (iMT). iMT stuðlar að minni eldsneytisnotkun í 48 V hybrid-bíl með samhliða kerfi.
48 V hybrid-aflrás með samhliða kerfi.
48 V hybrid-aflrásin með samhliða kerfi styður við brunahreyfilinn og bætir við raforku á mismunandi stigum akstursins. Fáðu frekari upplýsingar um þetta hugvitssamlega og sparneytna kerfi.
-
Þægileg gangsetning.
Hybrid-aflrásin með samhliða kerfi er sérstaklega gagnleg í borgarumferð þar sem Mild Hybrid-startarinn/rafallinn styður við brunahreyfilinn þegar bíllinn er gangsettur aftur eftir stöðvun í umferð. Hann stuðlar að hraðari og mýkri gangsetningu vélarinnar með viðbótartogi með því að sækja afl til 48 V rafhlöðunnar.
- 1
-
Hröðun.
Við hröðun styður startarinn/rafallinn við vélina með 4 til 10 kW afli, allt eftir hleðslu rafhlöðukerfisins og hvernig ökumaðurinn stígur á eldsneytisgjöfina. Þegar æskilegum hraða hefur verið náð fer kerfið í hlutlausa stillingu og skilar engu afli. Með því má draga úr losun koltvísýrings og eldsneytisnotkun.
- 1
-
Hleðsla í akstri.
Á stöðugum hraða er kerfið annaðhvort í lausagangi eða virkar eins og rafall sem hleður 48 V rafhlöðuna, allt eftir hleðslustöðu rafhlöðunnar.
- 1
-
Endurheimt.
Við sjálfvirka hemlun eða yfirkeyrslu knýr snúningssveifarásinn startarann/rafalinn, sem endurheimtir að hámarki 10 til 12 kW. Rafallinn breytir hreyfiorku við hemlun í rafmagn og leiðir það aftur inn í 48 V rafhlöðuna.
- 1
-
Aukinn Start/Stop-eiginleiki.
Við rennsli á litlum hraða verður Start/Stop-eiginleikinn virkur við 30 km/klst. Við hraðaminnkun á milli 30 og 0 km/klst., og með kúplinguna af, er slökkt alveg á vélinni.
- 1
Tengimöguleikar
Tengdu símann, bílinn og þig.
Nýr i30 er uppfullur af snjalltækni á borð við nýjan snertiskjá og fimm ára ókeypis áskrift að Bluelink® Connected Car Services til að halda þér auðveldlega í sambandi á öllum ferðalögum. Bluelink býður upp á þægileg samskipti við nettengda raddstýringu og snjallsímaforrit til að stjórna bílnum þínum. Hyundai LIVE Services veitir þér aðgang að upplýsingum um umferð í rauntíma, bílastæði, veður og áhugaverða staði.
Bluelink® Connected Car Services.
Stjórnaðu bílnum með snjallsímanum – eða með röddinni. Bluelink® Connected Car Services býður upp á hnökralausa tengingu við i30 með raddstýringu og búnaði sem gerir aksturinn ánægjulegri. Þá gerir Bluelink-forritið þér kleift að stjórna ýmsum eiginleikum. Leiðsögukerfinu fylgir fimm ára áskrift að Huyndai LIVE Services.
-
Upplýsingar um eldsneytisverð í rauntíma.
Finndu eldsneyti fljótt og á góðu verði – stöðugt uppfærð eldsneytisþjónusta gefur upp núverandi eldsneytisverð og upplýsingar um staðsetningu – pikkaðu bara á skjáinn til að velja áfangastað.
-
Bílastæðaleit.
Vertu fljótari að finna bílastæði – og sparaðu þér tíma og vesen. Þessi eiginleiki hjálpar þér að finna og bera saman bílastæðamöguleika í bílastæðahúsum, á bílastæðum og við götuna.
-
Veðurspá.
Viltu vita hvernig veðurspáin er áður en lagt er af stað? Með veðurþjónustu í rauntíma geturðu alltaf fylgst með nýjustu veðurupplýsingum um núverandi staðsetningu þína, áfangastað eða uppáhaldsborgir.
-
Hraðamyndavélaviðvörun.
Alhliða þjónusta sem birtir viðvaranir bæði fyrir fastar og hreyfanlegar hraðamyndavélar**, til að þú getir einbeitt þér að öruggum og þægilegum akstri.
-
Umferðarupplýsingar.
Vertu fljótari á staðinn. Með umferðarupplýsingum Hyundai í rauntíma færðu bestu leiðirnar miðað við ríkjandi aðstæður – sem og nákvæmustu áætlanirnar um komutíma.
-
Áhugaverðir staðir í rauntíma.
Það hefur aldrei verið auðveldara að leita að heimilisfangi, áhugaverðum stað eða hvoru tveggja. Textaleit gerir þér kleift að finna staðinn sem þú leitar að.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
Bluelink®-snjallsímaforritið.
Með Bluelink-forritinu geturðu læst og opnað i30-bílinn þinn með fjarstýringu, eða fundið hann þegar þú manst ekki alveg hvar þú lagðir honum. Forritið sendir einnig viðvörun ef einhver reynir að brjótast inn. Og ef þú vilt vita hvort þrýstingur í hjólbörðum er í lagi getur það líka sagt þér það.
-
Fjarstýrðar hurðalæsingar.
Gleymdirðu að læsa bílnum? Engar áhyggjur, i30 lætur þig vita með því að senda vöktunartilkynningu í símann þinn. Síðan geturðu notað PIN-númerið þitt til að læsa eða opna i30-bílinn með hnappi í Bluelink-forritinu.
- 1
-
Áfangastaður sendur í bíl.
Ef i30-bíllinn þinn er búinn leiðsagnarkerfi geturðu notað Bluelink-forritið til að leita að áfangastöðum þegar þú ert ekki í bílnum. Bluelink samstillir síðan leiðina við leiðsögukerfið þitt. Þú sest bara inn og ýtir á hnapp.
- 1
-
Finna bílinn minn.
Gleymdirðu hvar þú lagðir bílnum? Þú opnar bara Bluelink-forritið til að sjá hvar bíllinn þinn er – hvar sem er í heiminum.
- 1
-
Þjófavarnartilkynning.
Bluelink fylgist alltaf með bílnum þínum. Ef einhver reynir að brjótast inn í i30-bílinn þinn – átt er við hurðalæsinguna og dyrnar opnaðar – sendir Bluelink-forritið tilkynningu í snjallsímann þinn.
- 1
-
Upplýsingar um ástand bílsins.
Þú getur framkvæmt fjartengda bilanagreiningu með Bluelink-forritinu. Skýrslan um bílinn sýnir upplýsingar um þrýsting í hjólbörðum, viðvörunarljós vegna bilana, loftpúða, hemlakerfi og margt fleira.
- 1
-
Staða bíls.
Þarftu bensín? Athugaðu forritið. Fáðu fjaraðgang að stöðu bílsins hvenær sem er, eins og vegalengd þar til fylla þarf á eldsneyti, hvort dyrnar eru opnar/lokaðar eða læstar/ólæstar og hvort gluggar eða farangursgeymsla er opin/lokuð.
- 1
Öryggi
Meira SmartTech fyrir aukið öryggi.
Endurbætti Hyundai SmartSense-pakkinn – hugvitssamlega akstursaðstoðarkerfið okkar – er nú fullsamþættur við i30 og veitir þér og farþegum þínum öryggi og hugarró.
-
Akreinaaðstoð.
Í fyrsta sinn er i30 nú búinn akreinaaðstoð. Þegar kveikt er á henni heldur hún bílnum á miðri akreininni á hraða milli 0 og 145 km/klst. á þjóðvegum og borgargötum.
-
FCA-árekstraröryggiskerfi.
FCA-árekstraröryggiskerfið greinir veginn fram undan með ratsjá og myndavél og hemlar sjálfkrafa þegar það greinir óvænta hemlun hjá bílnum fyrir framan eða gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk á veginum.
-
Árekstraröryggiskerfi fyrir blindsvæði.
Kerfið notar tvo ratsjárskynjara á neðanverðum afturstuðaranum til að vara við umferð á blindsvæðinu. Ef stefnuljós er gefið við slíkar aðstæður virkjar kerfið hljóðviðvörun og beitir mótstýringu ef þörf er á.
-
Árekstraröryggiskerfi með umferðarskynjara að aftan.
Þegar bakkað er út úr stæðum þar sem skyggni er lítið varar kerfið ekki aðeins ökumanninn við þegar bílar nálgast frá hlið – heldur virkjar það einnig hemlana sjálfkrafa.
- 1
- 2
- 3
Hagkvæmni.
Hagkvæmni.
Það er einfalt og afslappað að komast á milli staða í Hyundai i30, sem býður upp á fjölbreytt úrval þæginda, m.a. til að hlaða símann, leggja í stæði án óþæginda og aka í hægindum.
Kynntu þér nýjan Hyundai i30 betur.