N Line – sportlegt yfirbragð.

Eftirtektarverðir hönnunarþættir N-línunnar endurspegla kraftmikla aksturseiginleika bílsins. Auk úrvals sérsniðinna hönnunaratriða býður nýr i10 N Line einnig upp á sportlegri akstursupplifun með öflugri 100 hestafla vél.

Ytra byrði

Kraftmikill og afgerandi. Frá öllum hliðum.

Það dylst engum að nýr i10 N Line sækir innblástur í akstursíþróttir. Uppfærð hönnunaratriði á ytra byrði fela meðal annars í sér nýtt grill og stuðara með kraftmiklu útliti í ætt við hinn byltingarkennda i30 N. Sérhannaðar 16 tommu álfelgur og LED-dagljós undirstrika sérkenni hönnunarinnar og sportlegt yfirbragðið.

Glænýr Hyundai i10 N Line á ferð
Smelltu á vinstri eða hægri örina til að fletta á fyrri eða næstu skyggnu.
  1. Felgur á nýjum Hyundai i10 N Line

    Sérhannaðar 16" álfelgur.

    16" álfelgurnar með rauðum áhersluhring eru sérsniðnar fyrir nýjan i10 N Line og vekja hvarvetna athygli.

  2. Framstuðari á nýjum Hyundai i10 N Line

    N Line stuðari og grill.

    Uppfærð hönnun framendans skartar sportlegum stuðara og hlífðarplötu og sérhannað N Line grillið með rauðum áhersluatriðum setur svo punktinn yfir i-ið.

  3. LED-ljós á Hyundai i10 N Line

    Einstök LED-dagljós.

    Skásett LED-dagljósin hafa sterka sportlega skírskotun og ljóma dag og nótt.

  4. Rautt i10-lógó á C-stoð

    N Line C-stoð.

    Einstök, X-laga C-stoð með i10-lógó í rauðum lit með sportlegu yfirbragði.

    Innanrými

    Sportleiki í hæstu hæðum.

    Sestu niður í uppfært ökumannsrými i10 N Line og þú finnur tafarlaust fyrir tengingunni við akstursíþróttir. Sérhannað N Line stýrið og gírskiptingin eru skreytt með rauðum loftopahringjum í mælaborðinu sem er með svartri áferð. Sportleg sætin veita góðan stuðning sem hentar kraftmiklum akstrinum.

    Stjórnborð nýs Hyundai i10 N Line
    Smelltu á vinstri eða hægri örina til að fletta á fyrri eða næstu skyggnu.
    1. Nærmynd af stýrinu í Hyundai i10 N Line

      Leðurklætt N Line stýri.

      N Line stýrið er klætt götuðu leðri með rauðum áherslusaum og sportlegum málmörmum.

    2. Nærmynd af gírstönginni í Hyundai i10 N Line

      Sportleg N Line gírskipting.

      N Line gírskiptingin er með sportlegum málmskreytingum, rauðri línu og leðurinnfellingum sem gefa betra grip og akstursíþróttaupplifun.

    3. Nærmynd af loftunaropi farþegamegin í nýjum Hyundai i10 N Line

      Kraftmikil áhersluatriði í rauðu.

      Innanrýmið er einnig skreytt rauðum loftopshringum og sportsætin skarta rauðum áherslusaumi.

    4. Nærmynd af málmfótstigum í Hyundai i10 N Line

      Sportleg málmfótstig.

      Sportleg málmfótstig auka á kraftmikla akstursupplifunina. Þeir eru með burstaðri málmáferð með stömu gúmmíi til að ná betri stjórn.

      Afköst

      Hleyptu lífi í aksturinn með aksturseiginleikum N Line.

      i10 N Line er í boði með þriggja strokka, 100 hö, 1,0 lítra T-GDI bensínvél með 172 togi (Nm). Til viðbótar við 1,2 lítra, fjögurra strokka MPI-bensínvélina með 84 hö. og 118 togi (Nm). Báðar vélarnar er í boði með fimm gíra beinskiptingu.

      Mynd af 1,0 lítra T-GDI bensínvél

      1,0 lítra T-GDI bensínvél.

      Þriggja strokka, 1,0 lítra T-GDI bensínvélin í i10 N Line skilar 73,6 kW (100 hö.) hámarksafli við 4500 sn./mín.

      Smelltu á vinstri eða hægri örina til að fletta á fyrri eða næstu skyggnu.
      1. 1
      2. 2
      3. 3