Hönnun.
Kynntu þér hönnun BAYON.
Einstök hönnun.
Nýr BAYON er auðþekkjanlegur á afgerandi línum og eftirtektarverðu útliti. Hér fer stílhreinn og rennilegur bíll sem sameinar verðlaunaða arfleifð Hyundai og glæsilega sjónræna útfærslu nýrra Sensuous Sportiness-hönnunarauðkenna okkar.
Listrænn innblástur
List víðs vegar að úr Evrópu sem innblásin er af BAYON.
Í tilefni heimsfrumsýningar BAYON buðum við níu mismunandi listamönnum og -konum hvaðanæva að úr Evrópu að skapa listaverk sem innblásin eru af hönnun bílsins. Hugmyndin að herferðinni kviknaði út frá einstöku útliti bílsins: Þetta er fyrsti bíllinn frá Hyundai sem þróaður er sérstaklega fyrir Evrópumarkað og einkennandi hönnun hans, sem byggir á Sensuous Sportiness-hönnunarauðkenni Hyundai, var nýtt sem listrænn innblástur.
Ytra byrði
Kraftmikil fágun Sensuous Sportiness-hönnunar.
Einstök hönnun BAYON einkennist af afgerandi línum og lykilhönnunareinkennum Hyundai. Skarpar línur hennar og örvalöguð ljós eru lifandi túlkun á Sensuous Sportiness-hönnunarauðkenni Hyundai sem einkennist af samhljómi milli hlutfalla, byggingarlags, stíls og tækni.

360°
Tjáðu þig. Þinn bíll. Þínir litir.
Hægt er að velja á milli níu lita á ytra byrðið til að fullkomna BAYON, þar á meðal er að finna nýjan lit: fenjaviðarperlugrænan. Að auki er hægt að velja tveggja tóna þak og samlit, svört speglahús sem gera þér kleift að sérsníða litasamsetningarnar enn frekar og skapa fullkominn bíl fyrir þinn smekk.
Innanrými
Einstaklega rúmgóður.
Hönnuðir Hyundai lögðu ríka áherslu á að hámarka þægindi farþega og auka pláss farangursgeymslu við hönnun bjarts og nútímalegs innanrýmis nýs Hyundai BAYON. Hurðirnar ramma mælaborðið glæsilega inn með innblæstri frá formum sem finna má í náttúrunni. Lögun hurðanna passar fullkomlega við mælaborðið og LED-stemningslýsingin gefur látlaust en fágað blátt yfirbragð í ökumannsrýminu.
Fágað innanrými skapar afslappaða stemningu.
Í innanrými BAYON skapa lágstemmdur litur og klæðning róandi stemningu sem gerir þér kleift að slaka á og einbeita þér að akstrinum. Vandlega valið úrval hlutlausra lita og efna í innanrými bjóða upp á samsvörun við lit á ytra byrði. Svart ofið áklæði er staðalbúnaður í innanrými en þess utan er hægt að velja tvær aðrar litasamsetningar.
Kynntu þér nýjan BAYON nánar.
Með byltingarkenndri hönnun og fyrsta flokks öryggiskerfi. Með háþróuðum tengimöguleikum ertu alltaf í sambandi – líka á ferðinni. Nýjar aflrásir og gírskiptingar ryðja veginn fyrir fágaðri og sjálfbærri akstursupplifun. Nýr BAYON setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla.