BAYON.
Stefnir hátt.
Sjáðu hlutina frá nýju sjónarhorni.
Nýr BAYON er smár að utan en stór að innan og hannaður til að setja mark sitt á tilveruna. Hann er smekkfullur af snjalltækni, svo sem fyrsta flokks öryggiskerfi og tengimöguleikum, auk þess sem hann er í boði með sparneytnum aflrásum sem hægt er að fá með 48 V samhliða hybrid-kerfi.
BAYON sker sig úr í flokki sambærilegra bíla með öryggisbúnaði, rými og útliti sem tekið er eftir.
Nýr BAYON er nýjasti og fyrirferðarminnsti meðlimur margverðlaunaðrar fólksbílalínu Hyundai. Þessi fyrirferðarlitli og lipri fólksbíll kemur með ferskan andblæ í flokk sambærilegra bíla með rennilegu yfirbragði, ríkulegu innanrými og úrvali snjalltækni á borð við hybrid-aflrásir fyrir samhliða kerfi og hugvitssamlegan öryggisbúnað og tengimöguleika.
7 ára ábyrgð.
Eins og allir bílar frá Hyundai er BAYON smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Kynntu þér nýjan BAYON nánar.
Með byltingarkenndri hönnun og fyrsta flokks öryggiskerfi. Með háþróuðum tengimöguleikum ertu alltaf í sambandi – líka á ferðinni. Nýjar aflrásir og gírskiptingar ryðja veginn fyrir fágaðri og sjálfbærri akstursupplifun. Nýr BAYON setur ný viðmið í flokki sambærilegra bíla.