Santa Fe

Stærri. Betri. Fallegri.

Vinsælasti jeppinn okkar í Evrópu hefur verið endurhannaður frá toppi til táar og býður nú upp á meira pláss, þægindi og notagildi. Hönnun nýs Santa Fe er áræðnari og meira afgerandi auk þess sem hann býðst með ótrúlegu úrvali nýrrar tækni, hybrid-aflrásum og nýjasta öryggisbúnaðinum.

Minni losun en meira afl. Fyrsta flokks hybrid-aflrás og tengiltvinnaflrás auðvelda þér að draga úr losun koltvísýrings og notkun eldsneytis.

Snilldarleg samþætting kraftmikils yfirbragðs og rennilegrar fágunar einkennir breytta hönnun að innan sem utan sem á sér enga sína líka í flokki jeppa.

Fyrsta flokks öryggisbúnaði og framúrskarandi akstursaðstoðarkerfum Santa Fe svipar til þeirra sem finna má í lúxusútfærslum bíla keppinautanna.

Dýrindis þægindi.

Meira rými, aukin þægindi og meira notagildi í samanburði við eldri gerð.

Meiri sparneytni.

Ný vélarlína býður upp á minni losun koltvísýrings ásamt nýjum hybrid-aflrásum og tengiltvinnaflrásum.

Previous slide
Next slide

Tengimöguleikar.

Njóttu tengingar og afþreyingar. Upplifðu allt það nýjasta í tengimöguleikum og tækni.

Öryggi.

Njóttu öryggis með fyrsta flokks öryggisbúnaði og framúrskarandi akstursaðstoðarkerfum.

7 ára ábyrgð.

Eins og allir aðrir Hyundai-bílar er nýr Santa Fe smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Vélartækni framtíðarinnar.

Allar nýskráðar Hyundai-gerðir með bensínvélar í Evrópu uppfylla Euro 6d-losunarstaðla. Dísilvélar fylgja svo í kjölfarið á þessu ári.

Uppgötvaðu alla kosti þessa sjö sæta jeppa.

Vinsælasti jeppinn okkar í Evrópu, nýr Santa Fe, er ekki bara stærri heldur líka betri. Upplifðu meira pláss og meiri snjalltækni á borð við fyrsta flokks tengimöguleika og einstaklega sparneytnar, nýjar aflrásir. Kynntu þér þetta nánar með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.

Óska eftir símtali frá söludeild Hyundai

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.