IONIQ 5

Fegurðin í rafknúnum nýjungum.

Hrífandi fegurð og framúrskarandi tækni – IONIQ 5 endurskilgreinir hugmyndina um rafbíla. Framúrstefnuleg hugmyndabílshönnun í bland við einstakt úrval nýjustu snjalltækni einkennir bílinn sem kemur þér lengra með hraðari hleðslu og rennilegum stíl.

Rennilegur þokki IONIQ 5 er innblásinn af framúrstefnulegri hönnun hugmyndabílsins Concept 45 EV og heiðrar hönnunararfleifð Hyundai sem uppfærð hefur verið fyrir framtíðina.

Njóttu hraðari hleðslu, meiri drægni, enn betri aksturseiginleika og meira pláss í innanrými – þökk sé tímamótahönnun á E-GMP undirvagni fyrir rafbíla.

Með rafbílaundirvagninum hefur okkur tekist að endurhanna innanrýmið og bjóða upp á einstaka upplifun.

Framtíð rafknúinna samgangna er runnin upp.

Hér fer ný gerð rafbíls sem býður upp á frábær afköst, hrífandi hönnun og einstaka aksturseiginleika ásamt 800 V rafhlöðukerfi sem skilar ofurhraðri hleðslu, allt byggt á glænýju byggingarlagi sem markar þáttaskil í orkuskiptunum.

Hvað er rafbíll?

Rafbílar á borð við IONIQ 5 nota ekki brennanlegt eldsneyti og losa því engan útblástur. Þar sem rafbílar eru hvorki með kúplingu né gíra minnkar viðhaldskostnaður og þökk sé tafarlausu togi taka þeir leiftursnöggt af stað. Hnökralaus og leiftursnögg hröðunin býður upp á kraftmikinn og spennandi akstur.

IONIQ 5 brennir hvorki bensíni né dísilolíu og losar því engan útblástur en skilar engu að síður allt að 481 km drægni.

Það kostar minna að reka rafbíla því þeir eru ekki með olíugeymi, gírkassa eða hvarfakút sem þýðir að viðhaldskostnaður er lægri og það þarf aldrei að skipta um olíu.

Hann tekur leiftursnöggt af stað og heillar með sportlegri hröðuninni. IONIQ 5 með tveimur mótorum, aldrifi og 77,4 kW rafhlöðu fer úr 0 – 100 km/klst. á 5,2 sekúndum.

Öryggi í sérflokki.

Njóttu hámarksöryggis með öryggis- og akstursaðstoðarbúnaði í sérflokki í bílaflota Hyundai, þar á meðal annars stigs sjálfvirkri öryggistækni.

Tenging eftir þínum þörfum.

Með stórkostlegu úrvali snjalltækni býður IONIQ 5 upp á endalausa tengimöguleika.

Hagkvæmni og hugvitssemi. Óviðjafnanleg þægindi.

Hönnuðir Hyundai hafa endurhannað innanrýmið með það fyrir sjónum að skapa nýja upplifun í bílnum með hagkvæmni og snjöll þægindi í fyrirrúmi.

Rafmögnuð frammistaða.

Njóttu hámarksöryggis með öryggis- og akstursaðstoðarbúnaði í sérflokki í bílaflota Hyundai, þar á meðal annars stigs sjálfvirkri öryggistækni.

7 ára ábyrgð.

Eins og allir Hyundai-bílar er IONIQ 5 smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Auk þess er afkastamikil LiPo-rafhlaðan með átta ára eða 160.000 km ábyrgð, hvort sem kemur fyrr. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Previous slide
Next slide

Kynntu þér IONIQ 5 nánar.

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.