Ekki hika, láttu vaða. Láttu að þér kveða.

Það eru litlu hlutirnir í lífinu sem gera gæfumuninn. Eins og i10. Spennandi og áberandi hönnun ásamt úrvali af framsækinni tækni ljá þessum snjalla innanbæjarbíl stílinn og sveigjanleikann sem þú þarft til að haga lífinu eins og þú vilt.

Fullkominn þegar plássið er lítið en stundin stór.

Það getur orðið þröngt á þingi á götum borgarinnar. Þegar kemur að því að þræða göturnar og skjóta sér í þröng bílastæði er þessi lipri og snjalli borgarbíll þarfaþing. i10 er aðeins 3,67 metrar á lengd og 1,68 metrar að breidd en að innan er hann rúmgóður og býður upp á sveigjanleika til að lifa stórt.

Kraftmikill og stílhreinn.

Fersk hönnun i10 grípur augað með rennilegum línum og kraftmiklum andstæðum. Bíllinn er sportlegur, státar af nýjum felgum og er með flotta einkennandi LED-lýsingu.

Háþróaðir tengimöguleikar.

Njóttu hnökralausra tenginga með nýjum stafrænum mælaskjá, 8 tommu snertiskjá, þráðlausri tengingu við Apple CarPlay™ og Android Auto™ auk Bluelink® Connected Car Services.

Öryggi og hugarró.

Akstursöryggispakkarnir eru með þeim bestu í flokki sambærilegra bíla og státa meðal annars af Hyundai Smart Sense – háþróaða akstursaðstoðarkerfinu okkar.

Ný útfærsla af spennandi hönnun.

Flæðandi línur og kraftmiklar andstæður – kraftmikið útlitið á i10 fangar athyglina á svipstundu. Að framan eru LED-dagljós felld inn í breitt, svart grillið og uppfærð hönnun á mótuðum aðalljósum gefa sportlegt yfirbragð. Fallegt innanrýmið tekur vel á móti þér með stemningslýsingu, nýjum stafrænum mælaskjá og nýjustu margmiðlunartækni.

Fyrri glæra Næsta glæra Kynntu þér hönnunina

Njóttu hnökralausra tengimöguleika.

Það er auðvelt að halda tengingu með 8 tommu skjá og eiginleikum á borð við Apple CarPlay og Android Auto.

Skoða meira

Akstursöryggistækni.

Með Hyundai Smart Sense, hugvitssamlega akstursaðstoðarkerfinu okkar, býður i10 upp á einn af bestu akstursöryggispökkunum í sínum flokki – sem er sérhannaður til að tryggja þér aukið öryggi og hugarró.

Nánar um öryggi

i10 N Line – með sportlegan karakter.

i10 N Line tekur þig skrefinu lengra með úrvali sérhannaðra hönnunaratriða og val um 100 ha. vél sem býður upp á enn sportlegri akstursupplifun.

Kynntu þér N Line

5 ára ábyrgð með ótakmörkuðum akstri.

Eins og allir Hyundai-bílar er i10 smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum fimm ára ábyrgð með ótakmörkuðum akstri til að þú getir notið þess sem þú kannt best að meta í lífinu, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu bílaábyrgð sem fyrirfinnst.



Meira um ábyrgð

Vélartækni framtíðarinnar.

Euro 6d-TEMP er staðalbúnaður hjá Hyundai. Allir nýskráðir Hyundai-bílar í Evrópu uppfylla nú þegar Euro 6d-TEMP losunarstaðlana. Euro 6d-TEMP felur í sér bæði WLTP-prófun og RDE-viðbótarpróf en skammstöfunin RDE stendur fyrir „Real Driving Emissions“ eða „raunverulegur útblástur við akstur“.

Kynntu þér Hyundai i10 betur.


Kynntu þér hönnunina.


Nánar um búnaðinn.


Kynntu þér N Line.