i30

Öryggi. Tengimöguleikar. Sparneytni. Til í tuskið.

Nýr i30 tikkar í öll box: Djörf ný hönnun, fyrsta flokks öryggisbúnaður, hnökralaus tenging og útfærslur með sparneytin 48 V samhliða hybrid-kerfi. Undirbúðu þig.

Þú ert með hjartað á réttum stað – við búum yfir tækninni.

Öll viljum við það besta fyrir ástvini okkar og öryggi þeirra og umönnun er okkur kappsmál. Það var sami eldmóður sem knúði áfram þróun nýs i30: bíls sem gætir allra farþeganna. Þökk sé nýjustu snjalltækni. Hún státar af fyrsta flokks öryggisbúnaði sem gætir þín, framúrskarandi tengimöguleikum og einstaklega skilvirkum aflrásum sem koma þér lengra.

Nýr i30 skartar flottu útliti og kemur ökumanninum á áfangastað. Leyfðu persónuleikanum að njóta sín með vali um þrjá mismunandi liti.

Þar á meðal bensín- og dísilvélar með 48 V samhliða hybrid-kerfi og snjallri beinskiptingu (iMT) sem býður upp á enn meiri sparneytni.

10,25" snertiskjár speglar snjallsímann þinn (með Android Auto™ og Apple CarPlay™) og tengir þinn i30 við Bluelink® Connected Car Services með ferðaupplýsingum í rauntíma.

Kynntu þér innblástur hönnunarinnar.

Vöðvar mannslíkamans undir sportlegum fatnaði urðu að innblæstri fyrir hönnunina og stílhrein og kröftug yfirbyggingin var mótuð til að tryggja rúmgott innanrými. Hönnun i10 endurspeglar þennan innblástur með andstæðum mjúkra flata og skarpra lína sem ljá honum tæknilegt yfirbragð. Að innan hafa hönnuðirnir skapað fullkomið jafnvægi með sportlegum stíl í bland við notagildi og gott rými.

Previous slide
Next slide

Njóttu framúrskarandi tengimöguleika.

Með stærsta skjáinn í sínum flokki og ítarlega tengimöguleika á borð við Bluelink®, Apple CarPlay™ og Android Auto™ er auðvelt að halda sambandi. Bluelink® gerir þér kleift að stjórna bílnum þínum með símanum eða röddinni, þökk sé nettengdri raddstýringu.

Skilvirk frammistaða.

Njóttu fyrsta flokks öryggis, skilvirkra aflrása og hugvitsamlegrar hagkvæmni í boði snjalltækninnar okkar.

Tengimöguleikar.

Með Bluelink® geturðu stjórnað bílnum með símanum þínum eða röddinni. Hyundai LIVE Services býður upp á upplýsingar um umferð, stæði og fleira í rauntíma.

Öryggi.

Ferns konar nýjum búnaði hefur verið bætt við akstursöryggistæknipakkann til að veita þér og farþegum þínum enn meira öryggi og hugarró.

i30 N Line.

Aðdáendur kraftmikils N Line-útlits eru spenntir fyrir hönnunaruppfærslum á nýjum i30 Hatchback N Line.

7 ára ábyrgð.

Eins og allir bílar frá Hyundai er i30 smíðaður samkvæmt ströngustu gæðastöðlum. Til viðbótar þessari gæðatryggingu fylgir honum sjö ára ábyrgð til að þú getir notið lífsins, án þess að hafa áhyggjur af bílnum. Aktu um áhyggjulaus með eina bestu ábyrgð sem fyrirfinnst í bílaiðnaðinum – sem staðalbúnað.

Vélartækni framtíðarinnar.

Euro 6d-TEMP er staðalbúnaður hjá Hyundai. Allir nýskráðir Hyundai-bílar í Evrópu uppfylla nú þegar Euro 6d-TEMP losunarstaðlana. Euro 6d-TEMP felur í sér bæði WLTP-prófun og RDE-viðbótarpróf en skammstöfunin RDE stendur fyrir „Real Driving Emissions“ eða „raunverulegur útblástur við akstur“.

Bóka þjónustu

Bóka reynsluakstur

Vinsamlegast athugið:
Hafa skal gilt ökuskírteini meðferðis þegar mætt er í reynsluakstur.